13. maí 2025
30. júní 2021
Norræn ráðstefna um vistvæna mannvirkjagerð 27.september
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Ráðstefnan Nordic Climate Forum for Construction verður haldin á Íslandi þann 27. september 2021.
Ráðstefnan Nordic Climate Forum for Construction verður haldin á Íslandi þann 27. september 2021.
Árið 2019 var komið á fót samstarfi milli Norðurlandanna um samræmingu á byggingarregluverki landanna varðandi loftslagsmál. Stofnað var formlegt samstarf milli HMS og systurstofnanna á Norðurlöndunum sem kallast "Nordic Dialogue Forum for LCA, climate and buildings“. Í yfirlýsingu frá byggingamálaráðherrum landanna við stofnun samstarfsvettvangsins kom fram vilji til að byggja upp samstarf um samræmingu viðeigandi aðgerða, aðferða, gagna, tækja og stefnu um kolefnishlutlausar byggingar.
Hér má sjá mynd af norrænu ráðherrunum sem var tekin í október 2019. Myndin er af vef Stjórnarráðsins.
Eitt af lykilverkefnum samstarfsins er að halda árlega ráðstefnu um helstu málefni er tengjast losun við mannvirkjagerð. Ráðstefnan var fyrst haldin í Malmö árið 2019 og síðan í vefútgáfu árið 2020 í Kaupmannahöfn. Í ár er komið að Íslandi að halda viðburðinn og mun ráðstefnan verða haldin þann 27.september næstkomandi í vefútgáfu líkt og í fyrra.
Nordic Climate Forum for Construction
Dagskráin er ekki af verri endanum en þarna eru samankomin öll helstu nöfnin í þessum geira og er þetta sannkölluð hátíð fyrir þá sem hafa áhuga á og sinna verkefnum tengdum mannvirkjagerð og umhverfismálum. Dagskrá viðburðarins má finna á eftirfarandi vefslóð, hægt er að skrá sig á ráðstefnuna hér að neðan en aðgangur er frír.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS