22. september 2026
23. september 2026
Norræn ráðstefna um loftslagsvæna mannvirkjagerð
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Skráning er hafin á Nordic Climate Forum for Construction 2026, sem fer fram á netinu 30. september
- Áhersla verður á stafræna þróun LCA og aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum
- HMS skipuleggur ráðstefnuna í ár, þar sem sérfræðingar og mannvirkjayfirvöld frá Norðurlöndum koma saman
Síðan 2018 hefur viðburðurinn verið haldinn af Nordic Sustainable Construction (NSC) í samstarfi við norræn mannvirkjayfirvöld og hefur hann verið mikilvægur vettvangur fyrir samtal um sjálfbæra þróun mannvirkjageirans á Norðurlöndum.
Í ár sér HMS um skipulagningu, og sérstök áhersla verður lögð á tvö málefni sem eru í brennidepli bæði á Norðurlöndum og innan Evrópusambandsins: stafræna þróun lífsferilsgreininga (LCA) og aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum.
Styður við framkvæmd Vegvísis að vistvænni mannvirkjagerð
Viðfangsefni ráðstefnunnar tengjast beint nokkrum lykilaðgerðum í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030.
Stafræn þróun LCA
Eitt af meginþemunum er þróun og samnýting stafrænna lausna sem styðja við sjálfbærari mannvirkjagerð. Þar verður meðal annars fjallað um byggingarvörureglugerðina (CPR), stafrænt vöruvegabréf (DPP) og stafræna mannvirkjaskrá, auk þess hvernig nýta má stafrænar lausnir til að bæta umhverfisgögn og lífsferilsgreiningar. Þetta tengist aðgerð 5.1.15 Nýting stafrænna lausna til að auka sjálfbærni í byggingariðnaði. Aðgerðin snýst meðal annars um að nýta BIM, hugbúnað fyrir lífsferilsgreiningar og önnur stafræn verkfæri til að einfalda ferla og auka nákvæmni gagna. Jafnframt er lögð áhersla á samhæfingu milli Norðurlandanna í gagnasöfnun og notkun stafrænnar tækni.
Aðlögun að loftslagsbreytingum
Á dagskránni verður einnig fjallað um aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum, þar á meðal kortlagningu og vöktun loftslagsáhættu. Umfjöllunin styður við aðgerðir 5.3.9 Hönnun fyrir aðlögun að loftslagsbreytingum og 5.3.7 Líffræðilegur fjölbreytileiki í hinu byggða umhverfi. Aðgerð 5.3.9 miðar að gerð leiðbeininga um aðlögun mannvirkja að loftslagsbreytingum, með áherslu á náttúruvá, kortlagningu helstu áhættuþátta og náttúrumiðaðar lausnir. Aðgerð 5.3.7 styður þessa nálgun með því að stuðla að mælanlegri aukningu líffræðilegrar fjölbreytni í byggðu umhverfi, enda verður samhengi loftslagsaðlögunar og vistkerfa sífellt mikilvægara við skipulag og hönnun mannvirkja framtíðarinnar.
Yfirvöld og sérfræðingar frá Norðurlöndum
Meðal fyrirlesara eru fulltrúar mannvirkjayfirvalda frá Íslandi, Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og Eistlandi, auk leiðandi sérfræðinga úr norrænu atvinnulífi og fræðasamfélagi. Pieter Staelens, yfirmaður sjálfbærrar mannvirkjagerðar hjá DG GROW – framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, flytur lykilfyrirlestur um nýju byggingarvörureglugerðina og stafræna þróun upplýsingakerfa byggingargeirans.
Opið öllum sem hafa áhuga á sjálfbærri mannvirkjagerð
Viðburðurinn er ætlaður stjórnvöldum, sveitarfélögum, hönnuðum, verktökum, fræðasamfélaginu, hugbúnaðarþróunaraðilum og öðrum sem koma að sjálfbærri þróun hins byggða umhverfis.
Sjá Dagskrá
Upplýsingar og skráning
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS



