Nokkrir áhugaverðir viðburðir um vistvæna mannvirkjagerð

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vert er að benda áhugasömum á afar áhugaverða viðburði um vistvæna mannvirkjagerð sem nýlega voru haldnir eða verða haldnir á næstunni:

  • Stöðufundur Byggjum grænni framtíð var haldinn 22. ágúst sl. Fundurinn var haldinn í tilefni þess að ár er liðið frá útgáfu Vegvísis að mannvirkjagerð 2030.

Í pallborðum var m.a. rætt um vistvænni byggingarefni og menntamál. Upptöku af fundinum má nálgast hér.

  • Grænni byggð stóð fyrir CIRCON-ráðstefnunni „Hringrás í byggingariðnaði: erum við tilbúin í stökkið?“ þann 1. september sl.

Dagskrá og upptöku af þessari mjög svo innihaldsríku ráðstefnu má nálgast hér.

  • Norræn vefráðstefna um vistvæna mannvirkjagerð verður haldin 15. sept. kl. 7:00-13:30 (ísl. tími) - Nordic Climate Forum for Constructions

Nálgast má dagskrá og frekari upplýsingar hér.

  • Norræn vefstofa um hringrásarhagkerfi byggingariðnaðarins verður haldin 28. sept. kl. 10:00-13:30 (ísl. tími)

Nálgast má dagskrá og frekari upplýsingar hér.

  • Stefnt er að því að auglýsa eftir nýjum umsóknum í Ask – mannvirkjarannsóknarsjóð í lok september.

Fylgist endilega með frekari fréttum hér.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS