20. maí 2025
16. desember 2022
Niðurstaða seinni úthlutunar ársins á stofnframlögum
Í vikunni var tilkynnt um niðurstöður í seinni úthlutun á stofnframlögum á árinu, til byggingar og kaupa á hagkvæmum íbúðum. HMS úthlutar stofnframlögum fyrir hönd ríkisins og tekur á móti og vinnur úr umsóknum.
Að þessu sinni voru allar umsóknir samþykktar, en sótt var um stofnframlög til byggingar á 24 íbúðum víðsvegar um landið. Heildarstofnframlögin í þessari úthlutun eru rúmlega 184 milljónir króna. Á árinu hefur verið úthlutað fyrir um 2.775 milljónir króna.
Flestar íbúðirnar í þessari úthlutun eru á landsbyggðinni eða 66% af íbúðunum. Gert er ráð fyrir að byggðar verði ellefu íbúðir í Suðurnesjabæ, fjórar íbúðir á Hvolsvelli og tvær íbúðir á Kirkjubæjarklaustri. Allar þessar íbúðir verða fyrir tekju- og eignalága á vinnumarkaði. Einnig var úthlutað til sjö íbúða í búsetukjarna fyrir fatlaða í Garðabæ.
Hvað eru stofnframlög?
Stofnframlög eru stuðningur í formi eiginfjár sem veitt eru annars vegar fyrir hönd ríkis í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í. Stofnframlög eru veitt til bæði kaupa og byggingar á íbúðarhúsnæði með það að markmiði að tryggja tekju- og eignalágum aðgengi að viðunandi húsnæði á viðráðanlegu verði.
Stofnframlag ríkis er 18% og sveitarfélags 12%. Ríki er heimilt er að veita allt að 4% viðbótarframlag vegna íbúðarhúsnæðis á vegum sveitarfélaga, íbúðarhúsnæðis ætlað námsmönnum eða öryrkjum. Einnig er heimilt að veita sérstakt byggðaframlag vegna byggingar almennra íbúða á svæðum þar sem skortur er á leiguhúsnæði og bygging íbúða hefur verið í lágmarki.