13. maí 2025
27. mars 2020
Nauðsynlegt að byggja þrátt fyrir samdrátt
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS: Samdráttur í nýbyggingum mikið áhyggjuefni
HMS: Samdráttur í nýbyggingum mikið áhyggjuefni
- 42% samdráttur er í byggingum á fyrstu byggingarstigum á milli ára.
- Ef ekki verður brugðist við má innan fárra ára búast við svipuðum skorti á íbúðarhúsnæði og þeim sem Íslendingar upplifðu árið 2017.
- Meira hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði á síðustu árum og framboð er líklegt til að aukast vegna fækkunar erlendra ríkisborgara og minni Airbnb útleigu vegna þeirrar efnahagslegu óvissu sem nú ríkir. Þetta dugir þó ekki til við að mæta íbúðaþörf til lengri tíma, að mati HMS. Halda þarf áfram að byggja í samræmi við undirliggjandi íbúðaþörf
- HMS hefur ekki breytt grunnspá sinni um íbúðaþörf til lengri tíma um að það þurfi að byggja 1.800 íbúðir árlega um allt land til ársins 2040. Tímabundnar aðstæður kalla þó á að gætt verði aukinnar varkárni á næstu 2-4 árum. Mælir HMS með því að miðað verði við 1.500 íbúða þörf á ári þar til húsnæðismarkaðurinn nær jafnvægi á ný.
- Forstjóri HMS: „Þrátt fyrir að talsvert sé af nýjum íbúðum í sölu núna verður staðan fljótlega önnur ef samdráttur í nýbyggingum verður jafn mikill og talning SI sýnir. Það framboð sem er til staðar af nýju íbúðarhúsnæði í dag er mun minna en á fyrstu árunum eftir bankahrunið og því gæti alvarlegur húsnæðisskortur, með tilheyrandi hækkun fasteignaverðs, látið á sér á kræla á ný ef ekkert er að gert.
Fækkun íbúða í byggingu er mikið áhyggjuefni að mati Húsnæðis - og mannvirkjastofnunar (HMS). 42% samdráttur er í byggingum á fyrstu byggingarstigum á milli ára. Þetta kemur fram í talningu Samtaka iðnaðarins (SI) sem birt var í dag. Samkvæmt talningunni fækkaði íbúðum á fyrstu byggingarstigum, „að fokheldu“, um ríflega 1.000 íbúðir frá sama tíma í fyrra sem er ríflega helmings fækkun frá fyrri spám. Leita þarf aftur til áranna 2011 og 2012 til að finna viðlíka samdrátt í byggingu nýrra íbúða. Ef ekki verður brugðist við má innan fárra ára búast við svipuðum skorti á íbúðarhúsnæði og þeim sem Íslendingar upplifðu árið 2017.
Þörf fyrir 1.800 nýjar íbúðir á ári – útlit fyrir að það náist ekki á næstu árum
Meira hefur verið byggt af íbúðarhúsnæði á síðustu árum og líklegt er að framboð komi til með að aukast á næstunni vegna fækkunar erlendra ríkisborgara og minni Airbnb útleigu vegna þeirrar efnahagslegu óvissu sem nú ríkir. Þetta dugir þó ekki til við að mæta íbúðaþörf næstu ára, að mati HMS. Halda þarf áfram að byggja. Að mati HMS er enn óuppfyllt þörf fyrir nýjar íbúðir á landinu öllu, mestmegnis á höfuðborgarsvæðinu. HMS hefur lagt mat á hugsanleg áhrif vegna Covid-19 faraldursins og telur að í ljósi aðstæðna sé ástæða til að gæta aukinnar varkárni og horfa frekar til þess að miða við 1.500 íbúða uppbyggingu á ári næstu 2-4 árin. Verði samdráttur í byggingariðnaði viðlíka þeim sem var á árunum eftir bankahrunið telur HMS að markmiðið um 1.500 íbúðir á ári muni ekki nást. Byggingartími íbúðarhúsnæðis, allt frá teikningum til sölu íbúða, er yfirleitt nokkur ár og því er mikilvægt að fylgjast vel með þróuninni til að sveitarfélög og aðrir aðilar geti jafnað út sveiflur.---
Hermann Jónasson, forstjóri HMS: „Þrátt fyrir að talsvert sé af nýjum íbúðum í sölu núna verður staðan fljótlega önnur ef samdráttur í nýbyggingum verður jafn mikill og talning SI sýnir. Það framboð sem er til staðar af nýju íbúðarhúsnæði í dag er mun minna en á fyrstu árunum eftir bankahrunið og því gæti alvarlegur húsnæðisskortur, með tilheyrandi hækkun fasteignaverðs, látið á sér á kræla á ný ef ekkert er að gert. Á sama tíma hefði það neikvæð áhrif á byggingariðnaðinn þar sem störfum myndi fækka og verðmæti fara forgörðum. Afar mikilvægt er að gera góðar áætlanir á tímum sem þessum og fylgja þeim þrátt fyrir tímabunda óvissu í íslensku efnahagslífi.“
---Sjá nánar um nýja íbúðartalningu SI hér: https://www.si.is/frettasafn/vaxandi-samdrattur-i-ibudum-i-byggingu
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS