5. febrúar 2026
5. febrúar 2026
Námskeið fyrir löggildingu mannvirkjahönnuða
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Skráning er hafin á námskeið sem getur leitt til löggildingar mannvirkjahönnuða. Námskeiðið er ætlað fyrir mannvirkjahönnuði, sem óska löggildingar HMS til að gera aðal- og séruppdrætti sbr. ákvæði 25. og 26. gr. laga um mannvirki nr. 160/2010.
Námskeiðið verður haldið í mars og apríl 2026. Um er að ræða vefnámskeið haldið af Iðan-fræðslusetur. Kennsluform byggir aðallega á fyrirlestrum (myndbönd) sem eru samtals um 22 klukkustundir og lestri á t.d. viðeigandi lögum og reglugerðum. Námskeiðið verður opnað þriðjudaginn 24. mars kl. 9.00 og verða þeir opnir til 17. apríl kl. 13.00. Námskeiðinu lýkur með prófi föstudaginn 17. apríl kl. 9.00 – 13.00
Námskeið löggildingu mannvirkjahönnuða
Með umsókn skal fylgja:
- Afrit af prófskírteini umsækjanda
- Staðfesting ráðuneytis um réttindi til starfsheitis
- Vottorð/um 3 ára starfsreynslu, sbr. 1. mgr. 26. gr. laga um mannvirki
Námskeiðsgjald er kr. 118.900
Umsóknir skulu berast eigi síðar en mánudaginn 16. mars 2026
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




