23. nóvember 2023

Mýrdalshreppur undirritar samkomulag um aukna uppbyggingu íbúðarhúsnæðis

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Mýrdalshreppur er annað sveitarfélagið sem skilgreinir framlag sitt til aukins framboðs íbúðarhúsnæðis innan rammasamnings milli ríkis og sveitarfélaga.
  • Sköpuð verða skilyrði í Vík til þess að byggðar verði um 20 íbúðir á árin næstu fimm árin sem er nærri 7% árlegur vöxtur mv. núverandi stærð sveitarfélagsins.
  • Samkomulagið gerir ráð fyrir auknu framboði hagkvæmra íbúða með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og að 45 slíkar íbúðir verða byggðar á næstu fimm árum. Það jafngildir 15% allra íbúða í Mýrdalshreppi sem eru nú 293 talsins, skv. mannvirkjaskrá HMS.

Mýrdalshreppur varð á dögunum annað sveitarfélagið til þess að undirrita samkomulag um aukið framboð íbúðarhúsnæðis á næstu fimm árum.

Mýrdalshreppur er jafnframt fyrsta sveitarfélagið til þess að staðfesta árlega endurskoðun á húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2024.

Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Einar Freyr Elínarson sveitarstjóri Mýrdalshrepps og Hermann Jónasson forstjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar hafa undirritað samkomulag um að á Vík verði byggðar um 20 íbúðir á ári á næstu fimm árin og að fjármögnuð verði á tímabilinu uppbygging á allt að 45 íbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað.

Sigurður Ingi Jóhannsson: „Ég fagna því að Mýrdalshreppur sé fyrst sveitarfélaga á landsbyggðinni til að stíga þetta skref og setja sér skýra stefnu um aukið framboð íbúðarhúsnæðis. Mikil fjölgun íbúa hefur átt sér stað í Vík og mikilvægt að mörkuð sé skýr stefna til að mæta fyrirsjáanlegri íbúðaþörf. Við stefnum að gríðarlegri uppbyggingu á næstu árum um allt land og mikilvægt að ríki og sveitarfélög hafi sameiginlega sýn til að mæta þeirri þörf sem blasir við.“

Áformin eru í samræmi við nýstaðfesta húsnæðisáætlun Mýrdalshrepps fyrir árið 2024 og ætlar sveitarfélagið að leitast við að tryggja nægjanlegt framboð byggingarhæfra lóða í samræmi við samkomulagið þannig að byggingarhæfar lóðir ár hvert rúmi 20-30 íbúðir.

Einar Freyr Elínarson: „Samkomulagið markar tímamót fyrir Mýrdalshrepp og styður við markmið sveitarfélagsins um heilbrigðan húsnæðismarkað fyrir ört fjölgandi hóp íbúa. Mýrdalshreppur verður við undirritun samkomulagsins annað sveitarfélagið á landinu til þess að marka skýra stefnu um aukið framboð íbúðarhúsnæðis á grundvelli rammasamnings ríkis og sveitarfélaga. Aukið framboð íbúða er lykilatriði í því að styðja við sjálfbæra byggðaþróun og samvinna ríkis og sveitarfélagsins er mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingaráformum Mýrdalshrepps.“

Fylgiskjöl:

Rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða 2023-2032 og sameiginlega sýn og stefnu í húsnæðismálum.

Samkomulag um aukið framboð íbúðarhúsnæðis í Mýrdalshreppi.

Húsnæðisáætlun Mýrdalshrepps 2024.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS