18. júlí 2024

Möguleg slysahætta af aukakönnum með skurðblaðabotni frá Vitamix

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

HMS vekur athygli á innköllun Vitamix á Íslandi/Kælitækni á 225ml og 600ml aukakönnum með skurðblaðabotni frá Vitamix. Könnurnar geta losnað frá skurðblaðabotninum og leitt til hættu á að fólk skeri sig á blöðunum.

Rafföng: 225ml og 600ml aukakönnur með skurðblaðabotni frá Vitamix.

Framleiðandi/Vörumerki: Vitamix.   

Þekktir söluaðilar á Íslandi: Vitamix á Íslandi/Kælitækni en mögulega gætu þessar könnur hafa borist hingað til lands eftir öðrum leiðum, t.d í gegnum vefverslanir.

Hætta: Slysahætta getur stafað af þessum könnum.

 

HMS beinir því til allra eigenda og notenda viðkomandi búnaðar að hætta notkun hans þegar í stað og hafa samband við Vitamix á Íslandi/Kælitækni.

Sjá frekari upplýsingar og leiðbeiningar í innköllun Vitamix á Íslandi/Kælitækni.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS