8. maí 2025
11. maí 2016
Möguleg hætta á raflosti af tenglum (innstungum) frá Gira
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
HMS vekur athygli á innköllun S. Guðjónssonar ehf og Gira á tenglum með fiktvörn (snertivörn/„barnavörn“), vegna hættu á raflosti sem af þeim getur stafað. Viðkomandi tenglum var dreift af Gira til raftækjaverslana/heildsala á tímabilinu 09.12.2014 til 26.01.2016, sjá nánar innköllun Gira.

Á Íslandi sá S. Guðjónsson ehf um dreifingu tenglanna, aðallega til rafverktaka sem svo sáu um uppsetningu á heimilum og í fyrirtækjum. Skv. upplýsingum er aðeins lítill hluti viðkomandi tengla með þessum galla og hættan á raflosti ekki mikil, en þó fyrir hendi.
Rafföng: Tenglar með fiktvörn (snertivörn/„barnavörn“).
Framleiðandi/Vörumerki: Gira af mismunandi gerðum, sjá nánar innköllun Gira.
Hætta: Hætta á raflosti.
Þekktir söluaðilar á Íslandi: S. Guðjónsson ehf og ýmsir rafverktakar.
Sölutímabil: 09.12.2014 til 26.01.2016.
Mannvirkjastofnun beinir því til allra eigenda og umráðamanna tengla eins og hér um ræðir að hafa samband við S. Guðjónsson ehf, www.sg.is .
Sjá innköllun Gira
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS