11. janúar 2024

Möguleg hætta á raflosti og bruna af völdum USB-hleðslutækja frá Åkstorm.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun IKEA á 40W USB-hleðslutækjum af gerðinni Åkstorm, ICPSW5-40-1, sjá nánar í innköllun IKEA. Þekktur söluaðili á Íslandi er IKEA en mögulega gætu þessi hleðslutæki hafa borist hingað til lands eftir öðrum leiðum.

 

Rafföng: USB-hleðslutæki af gerðinni Åkstorm.

 

Framleiðandi/Vörumerki: Åkstorm, ICPSW5-40-1, vörunúmer 50461193.  

 

Þekktir söluaðilar á Íslandi: IKEA en mögulega gætu þessi hleðslutæki hafa borist hingað til lands eftir öðrum leiðum, t.d í gegnum vefverslanir.

 

Hætta: Aðtaug (snúra) tækisins getur skemmst og valdið raflosti eða bruna.

 

HMS beinir því til allra eigenda og notenda viðkomandi búnaðar að hætta notkun hans þegar í stað og hafa samband við framleiðanda/söluaðila.

Sjá frekari upplýsingar og leiðbeiningar í innköllun IKEA: https://www.ikea.is/is/innkollun.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS