23. apríl 2025
12. apríl 2023
Möguleg brunahætta af ryksugum/gólfhreinsitækjum frá BISSELL
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun BISSELL á ryksugum/gólfhreinsitækjum af gerðunum 2582N og 2588N, sem vitað er til að boðnar hafi verið til sölu á Íslandi. Innköllun BISSELL á heimsvísu nær til fleiri gerða sem mögulega gætu hafa verið boðnar til sölu hér á landi eða borist hingað eftir öðrum leiðum.
Rafföng: Ryksugur/gólfhreinsitæki af gerðunum BISSELL 2582N og BISSELL 2588N.
Framleiðandi/Vörumerki: BISSELL 2582N og BISSELL 2588N.
Þekktir söluaðilar á Íslandi: Elko og Topshop.is.
Hætta: Rafrásaborð í stýrirás fyrir rafhlöður getur í einstaka tilfellum ofhitnað og valdið bruna.
HMS beinir því til allra eigenda og notenda viðkomandi búnaðar að hætta notkun þeirra þegar í stað og hafa samband við söluaðila.
Sjá frekari upplýsingar og leiðbeiningar í innköllun BISSELL:
Innköllun Bissell fyrir Ísland: https://recall.bissell.com/is
Innköllun Bissell fyrir Danmörku: https://recall.bissell.com/dk
Nálgast má innköllun fyrir önnur lönd og fleiri gerðir í flettiglugga á ofangreindum síðum.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS