21. maí 2025
6. mars 2018
Möguleg brunahætta af fartölvum frá Lenovo
HMS vekur athygli á innköllun Lenovo á fjórum gerðum af fartölvum frá Lenovo vegna brunahættu sem af þeim getur stafað. Viðkomandi tölvur voru framleiddar á tímabilinu desember 2016 til október 2017 og a.m.k. ein gerð þeirra var seld hér á landi hjá Origo hf (áður Nýherji), sjá nánar innköllun Origo hér fyrir neðan.

Rafföng: Fartölvur.
Framleiðandi/Vörumerki: Lenovo ThinkPad X1 Carbon (5th Gen) af gerðunum 20HQ, 20HR, 20K3 og 20K4. Sjá nánar innköllun framleiðanda hér fyrir neðan.
Hætta: Laus skrúfa getur valdið skammhlaupi í rafhlöðu sem leitt getur til ofhitnunar og brunahættu.
Þekktir söluaðilar á Íslandi: Origo hf (áður Nýherji). Fartölvur af viðkomandi gerðum gætu einnig hafa borist til landsins eftir öðrum leiðum.
Sölutímabil: Viðkomandi tölvur voru framleiddar á tímabilinu desember 2016 til október 2017 og seldar á því tímabili og fljótlega eftir það.
Mannvirkjastofnun beinir því til allra eigenda og umráðamanna fartölva eins og hér um ræðir að stöðva notkun þeirra þegar í stað og hafa samband við Origo hf eða framleiðanda, sjá nánar hér fyrir neðan.