23. maí 2025

Minna um vísitölubindingu hjá styttri samningum um markaðsleigu eftir lagabreytingu

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Langflestir leigusamningar sem ná um markaðsleigu og eru til tólf mánaða eða skemur eru nú ekki vísitölubundnir
  • Hlutdeild vísitölutengingar hjá styttri samningum hefur lækkað úr 45 prósentum fyrir lagabreytingu niður í 7 prósent eftir lagabreytingu
  • Mest var breytingin hjá leigufélögum sem rekin eru í hagnaðarskyni

Langflestir leigusamningar sem ná um markaðsleigu og eru til tólf mánaða eða skemur eru nú ekki bundnir við vísitölu. Breytingar á húsaleigulögum sem tóku gildi í september 2024 óheimiluðu vísitölutengingu slíkra samninga, en fyrir lagabreytingu var um helmingur þeirra vísitölubundinn.

Samkvæmt lagabreytingunum er almennt óheimilt að binda verð við vísitölu eða gera aðrar verðbreytingar á tímabundnum leigusamningum sem eru 12 mánuðir eða styttri. Samningar um íbúðir lögaðila sem ekki eru reknar í hagnaðarskyni geta þó verið undanþegnir þessari reglu, líkt og námsmannaíbúðir og áfangaheimili.

Á mynd hér að neðan má sjá hlutfall vísitölubundinna samninga sem ná um markaðsleigu og giltu til tólf mánuði eða skemur í leiguskrá fyrir og eftir gildistöku lagabreytingarinnar. Við markaðsleigu er átt við leigusamninga þar sem leigusalar eru einstaklingar eða hagnaðardrifin leigufélög.

Líkt og myndin sýnir lækkaði hlutdeild vísitölutengingar hjá styttri samningum um markaðsleigu úr 45 prósentum fyrir lagabreytingu niður í 7 prósent eftir lagabreytingu. Í nær öllum tilvikum eru vísitölubundnir samningarnir bundnir við vísitölu neysluverðs.

 

Hlut­deild vísi­tölu­tengdra lækk­ar úr 76 pró­sent­um í 15 pró­sent hjá leigu­fé­lög­um sem rek­in eru í hagn­að­ar­skyni

Myndin hér að neðan sýnir hlutfall vísitölubundinna samninga fyrir og eftir gildistöku lagabreytingar eftir tegundum leigusala. Líkt og myndin sýnir voru 22 prósent leigusamninga hjá íbúðum í eigu einstaklinga vísitölubundinn sem giltu í eitt ár eða skemur vísitölubundin fyrir lagabreytingu. Eftir lagabreytingu eru einungis 4 prósent slíkra leigusamninga vísitölubundin.

Hjá leigufélögum sem rekin eru í hagnaðarskyni er breytingin enn meiri fyrir og eftir lagabreytingu. Rúmlega þrír af hverjum fjórum leigusamningum sem giltu í eitt ár eða skemur og voru um íbúðir í eigu hagnaðardrifinna leigufélaga voru bundnir við vísitölu fyrir lagabreytingu, en eftir lagabreytingu eru einungis 15 prósent þeirra vísitölubundnir. Þar á meðal gætu verið leigusamningar sem falla undir undanþágu frá banni við vísitölubindingu styttri leigusamninga.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS