18. september 2020

Mikil aukning þinglýstra kaupsamninga milli ára

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Þjóðskrá hefur gefið út nýjar tölur fyrir þinglýsta kaupsamninga fasteigna í ágúst. Eins og HMS hefur fjallað um þá hefur verið mikið líf á fasteignamarkaði að undanförnu og því kemur ekki á óvart að fjöldi þinglýstra kaupsamninga hafi aukist mikið milli ára. Fjöldi samninga á höfuðborgarsvæðinu jókst um 40% samanborið við ágúst í fyrra, sama má segja um veltuaukningu en heildarveltan milli ára jókst um 50%. Þessar tölur eru í samræmi við umfjöllun HMS um nýbirtar tölur Þjóðskrár um vísitölu íbúðaverðs þar sem mældist þónokkur hækkun milli mánaða. Því er ljóst að umsvifin seinustu mánuði hafa verið mikil og ef fjöldi samninga í júlí og ágúst er borin saman við sama tveggja mánaða tímabil 2018, þegar fasteignamarkaðurinn var í hæstu hæðum, þá er rúmlega 5% aukning í fjölda samninga og 30% miðað við sama tímabil 2019. Sama má segja um landsvæði utan höfuðborgarsvæðisins en þar er 30% aukning milli júlí og ágúst í ár og ársins 2018 og 20% miðað við 2019. 

Þessi aukning er í samræmi við það sem skammtímavísar HMS (m.a. fjöldi söluauglýsinga teknar úr birtingu) bentu til þar sem mikil aukning hefur verið seinustu mánuði. Sögulega hefur verið mikil fylgni milli fjölda auglýsinga sem eru teknar úr birtingu og fjölda útgefinna kaupsamninga. Því voru sterkar vísbendingar uppi um mikil umsvif á fasteignamarkaði að undanförnu og ljóst að ekkert lát er þar á.