10. mars 2026

Metþátttaka á Steinsteypudeginum 2026: Skýr stuðningur við auknar umhverfiskröfur

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Steinsteypudagurinn 2026, sem haldinn var á Grand Hótel þann 27. febrúar síðastliðinn, markaði tímamót með metþátttöku
  • Um 140 manns sóttu viðburðinn, sem endurspeglar vaxandi þunga í umræðu um sjálfbærni, nýsköpun og framtíð steinsteypu í íslenskum byggingariðnaði
  • Áróra Árnadóttir og Gústaf Adolf Hermannsson, sérfræðingar úr teymi starfsumhverfis mannvirkjagerðar hjá HMS, fluttu erindi um lífsferilsgreiningar (LCA) og tæknilegar leiðbeiningar í formi Rb-blaða

Rb-blöð­in og mik­il­vægi sam­starfs

Gústaf Adolf kynnti nýútgefið Rb-blað um niðurlögn og aðhlúun steypu, sem unnið var í samstarfi við Steinsteypufélagið, og fór yfir þær breytingar sem orðið hafa á miðlun tækniupplýsinga ásamt þeim tækifærum sem þær skapa. Umsjón og gerð blaðanna er í höndum HMS og er lögð áhersla á að þau séu unnin í nánu samráði við hagaðila á markaði. Þetta ferli tryggir að leiðbeiningarnar séu í senn faglegar, að þær taki mið af núverandi þekkingu og reynslu af markaði, byggi á breiðum þekkingargrunni og séu hagnýtar fyrir íslenskar aðstæður.

Gústaf fjallaði um ýmsar breytingar sem orðið hafa varðandi Rb-blöðin, m.a. að þau séu aðgengileg öllum án endurgjalds, að ritun og rýni fari fram í nánu samstarfi við markaðinn, og þær breytingar sem eru fyrirhugaðar í vefumhverfi blaðanna. Að lokum var undirstrikað mikilvægi þess að góð samvinna sé milli HMS og markaðar við gerð leiðbeininga og hve árangursrík sú nálgun hefur reynst í þeim verkefnum sem þegar hafa verið unnin með þessum hætti.

Kolefn­is­spor bygg­inga: Frá kröfu yfir í tæki­færi

Áróra Árnadóttir fjallaði um innleiðingu kröfu um lífsferilsgreiningu (LCA) í byggingarreglugerð, þar sem skila þarf heildstæðri greiningu á kolefnisspori mannvirkja áður en byggingarleyfi er veitt. Hún rakti uppruna kröfunnar og hvernig hún þjónar því markmiði stjórnvalda að minnka kolefnisspor mannvirkjagerðar og skapa gagnsæi við samanburð á byggingarlausnum.

Í erindi sínu varpaði Áróra ljósi á þau tækifæri sem felast í þessum breytingum fyrir íslenskan steinsteypuiðnað. Þótt áskoranir fylgi nýjum reglum, opna þær dyr fyrir:

  • Nýsköpun og aukna samkeppnishæfni
  • Eflingu staðbundinnar framleiðslu
  • Betra aðgengi að gögnum og stafrænum lausnum

„Eng­inn í saln­um rétti upp hönd“

Eitt eftirminnilegasta augnablik dagsins átti sér stað í upphaf pallborðsumræða. Þegar umræðustjóri spurði salinn hvort einhver teldi að nýja LCA-krafan væri „óþarflega íþyngjandi fyrir markaðinn“, var svarið afgerandi: Enginn í salnum rétti upp hönd.

Þessi viðbrögð sýna svart á hvítu að íslenskur byggingariðnaður er ekki einungis tilbúinn í breytingar, heldur lítur á umhverfisyfirlýsingar og kolefnisútreikninga sem eðlilegan og nauðsynlegan hluta af nútíma mannvirkjagerð.

HMS þakkar skipuleggjendum Steinsteypudagsins fyrir frábæran dag og hlakkar til áframhaldandi samstarfs við iðnaðinn við að byggja upp sjálfbæra framtíð.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS