23. apríl 2021

Metfjöldi viðskipta um íbúðarhúsnæði í mars

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í mars voru gefnir út 1.488 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði, samkvæmt nýbirtum tölum frá Þjóðskrá Íslands, en þær ná eingöngu yfir samninga sem búið er að þinglýsa og því er líklegt að enn fleiri samningar muni bætast við með útgáfudag í mánuðinum. Ekki hafa fleiri viðskipti átt sér stað í stökum mánuði frá upphafi mælinga eða frá árinu 2006.

Ef fjöldi samninga er skoðaður út frá landsvæðum þá var mars þriðji stærsti skráði mánuðurinn á höfuðborgarsvæðinu en bæði september 2020 og júní 2007 voru ögn hærri. Fyrir landsbyggðina í heild var metið hins vegar slegið og gott betur en það því fjöldi viðskipta var ríflega 14% meiri en áður hefur mælst í stökum mánuði. Met var slegið í alls þremur landshlutum af átta eða á Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðausturlandi en metið var jafnað á Vesturlandi.

Undanfarna mánuði hafa nokkur met verið slegin um sölu fasteigna miðað við árstíma en nú er um að ræða met óháð árstíma. Það er því óhætt að segja að árið hafi byrjað með látum og það sé enn þá mikið líf á fasteignamarkaði.

Í síðustu mánaðarskýrslu hagdeildar var því spáð að fjöldi viðskipta yrði nokkuð meiri í mars en undanfarna mánuði, sem byggði á skammtímamælikvarða hagdeildarinnar þar sem fjöldi íbúða teknar úr birtingu á vefnum fasteignir.is er mældur. Samkvæmt mælikvarðanum þá var metfjöldi íbúða teknar úr birtingu sem gefur vísbendingu um að fjöldi kaupsamninga verði einnig mikill. Nokkuð fleiri íbúðir voru þó teknar úr birtingu miðað við fjölda þinglýstra kaupsamninga undanfarna mánuði en þrátt fyrir það hefur mælikvarðinn gefið góða vísbendingu um hvernig fasteignamarkaðurinn er að þróast áður en opinberar tölur birtast.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS