5. desember 2023

Metfjöldi umsókna um hlutdeildarlán

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Flestar umsóknir um hlutdeildarlán í nóvember voru til kaupa á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu.
  • 170 hlutdeildarlán verið veitt frá upphafi til kaupa á íbúðum í Reykjavík.
  • HMS hefur útbúið nýja reiknivél til að aðstoða fyrstu kaupendur við að máta sig við skilyrði hlutdeildarlána.

Alls bárust HMS 73 umsóknir um hlutdeildarlán í október síðastliðinn. Lang flestar umsóknirnar voru vegna kaupa á íbúðum á höfuðborgarsvæðinu eða 58 umsóknir, 14 umsóknir voru á vaxtarsvæðum utan höfuðborgarsvæðisins og 1 umsókn á landsbyggð utan vaxtarsvæða.

Það sem af árinu 2023 þá hefur HMS veitt 178 hlutdeildarlán, samtals að fjárhæð um 1.956 milljónir króna. Um 57% lánanna eru á vaxtarsvæðum utan höfuðborgarsvæðisins (101 lán) og 40% þeirra á höfuðborgarsvæðinu (71 lán), 6 lán hafa verið veitt á landsbyggð utan vaxtarsvæða.

Frá því að hlutdeildarlán hófu göngu sína á síðari hluta árs 2020 þá hefur HMS veitt samtals 631 lán að fjárhæð samtals 5.668 milljónir króna. Um 2.887 milljónir eru vegna kaupa á íbúðum á vaxtarsvæðum, um 2.640 milljónir á höfuðborgarsvæðinu og tæplega 140 milljónir króna á landsbyggð utan vaxtarsvæða.

Flest lán hafa verið veitt á vaxtarsvæðum utan höfuðborgarsvæðisins (347 lán) helst í Reykjanesbæ (135 lán),  Akureyrarbæ (54 lán) og Akraneskaupstað (51 lán). Næstflest lán eru á höfuðborgarsvæðinu eða 266 lán helst í Reykjavík (170) sem þar sem jafnframt flest lán hafa verið veitt, Hafnarfirði (40 lán) og Garðabæ (22 lán). Á landsbyggðinni utan vaxtarsvæða hafa verið veitt 18 lán helst í Dalvíkurbyggð (5 lán).

Nokkur aukning hefur verið í umsóknum um hlutdeildarlán að undanförnu. Á fyrri hluta ársins bárust 33 umsóknir en eru þær nú orðnar alls 495 talsins og er þetta mesti fjöldi umsókna frá því að reglur um hlutdeildarlán tóku fyrst gildi á síðarin hluta árs 2020.

Hlutdeildarlán eru veitt til kaupa á nýjum fullbúnum íbúðum sem samþykktar eru af HMS og fer hámarksverð þeirra eftir stærð, fjölda svefnherbergja og staðsetningu. Jafnframt skal heimilað söluverð vera í samræmi við söluverð sambærilegra íbúða sem bjóðast á almennum markaði og því ekki sjálfgefið að hámarksverð skv. reglugerð eigi við. Ef gerður er samanburður á verði nýrra fullbúinna íbúða sem seldar hafa verið á höfuðborgarsvæðinu á árinu þá má sjá að söluverð íbúða sem keyptar hafa verið án hlutdeildarláns er fermetraverð íbúðanna að meðaltali um 7,8% hærra en fermetraverð sambærilegra íbúða sem keyptar eru með hlutdeildarláni.

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir meðalfermetraverð eftir stærðum seldra íbúða á höfuðborgarsvæðinu  á árinu 2023,  annarsvegar eignir sem seldar eru án hlutdeildarláns og hins vegar með hlutdeildarláni. Um er að ræða nýjar eignir í fjölbýli, byggðar árið 2021 eða síðar, 30 m2 – 115 m2. Notast er við uppreiknað söluverð mv. vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu.

Ef borin eru saman verð nýrra fullbúinna íbúða á höfuðborgarsvæðinu, má sjá að íbúðir sem fjármagnaðar eru með hlutdeildarláni eru að jafnaði ódýrari en íbúðir sem ekki eru fjármagnaðar með hlutdeildarláni. Samanburðurinn á við um þinglýsta kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu og telur eignir sem fjármagnaðar hafa verið með hlutdeildarláni eða fyrir liggur lánsloforð um hlutdeildarlán.

Ný reiknivél hlutdeildarlána

HMS hefur útbúið nýja reiknivél sem ætluð er til að auðvelda fyrstu kaupendum og umsækjendum um hlutdeildarlán að átta sig á skilyrðum hlutdeildarlána og máta sig við úrræðið. Í reiknivélina er m.a. hægt að setja inn fjölskyldustærð og fá þannig upplýsingar um leyfilegar hámarkstekjur heimilisins. Einnig er hægt setja inn upplýsingar um eignir og skuldir og fá þannig upplýsingar um eigið fé umsækjanda og mögulegt hámarkskaupverð íbúða. Reiknivélin er bæði á íslensku og ensku má finna á heimasíðu HMS.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS