31. janúar 2024

Mesta aukningin í atvinnuhúsnæði á Suðurlandi

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Skráðum fermetrum í atvinnuhúsnæði hefur fjölgað um rúman fjórðung á Suðurlandi á síðustu tíu árum, mest allra landshluta. Uppbyggingin hefur einnig verið mikil á Suðurnesjum og í höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur, en hún hefur verið minnst á Vesturlandi. Þetta kemur fram gögnum sem HMS hefur unnið upp úr fasteignaskrá.

Alls voru skráðir rúmir 14 miljónir fermetrar atvinnuhúsnæðis á íslandi á síðasta ári og var rúmur þriðjungur þess skráður í Reykjavík og tæpur fimmtungur skráður annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Þar á eftir koma Suðurland og Suðurnes, þar sem 11 og 9 prósent atvinnuhúsnæðis er skráð í fermetrum talið.

Líkt og myndin hér að neðan sýnir hefur hlutfallsleg aukning í fermetrafjölda atvinnuhúsnæðis verið mest á Suðurlandi, en heildarflatarmálið á svæðinu um 25,6 prósent á svæðinu. Aukningin nam 18,9 prósentum á Suðurnesjum og 17,3 prósentum á höfuðborgarsvæðinu utan Reykjavíkur. Minnst hefur aukningin hins vegar verið á Vesturlandi, þar sem fjöldi fermetra hefur aukist um 6,3 prósent á síðustu tíu árum.

Aukning á magni atvinnuhúsnæðis frá 2014

Síðastliðin 15 ár hefur aukning á atvinnuhúsnæði verið nokkuð stöðug í kringum 1 prósent á ári eftir mikla þenslu á framboði á atvinnuhúsnæði á árunum 2006 – 2008 þegar árleg aukning var yfir 4 prósent. Á árunum 2020 og 2021 hægði svo nokkuð á aukningunni, en á síðustu tveimur árum er hún aftur orðin sambærileg því sem hún var árið 2019, líkt og myndin hér að neðan sýnir.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS