21. ágúst 2026
21. ágúst 2026
Merki um kólnun á byggingarmarkaði
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Eftirspurn eftir vinnuafli í byggingariðnaði hefur dregist saman
- Vísbendingar eru um samdrátt á allra fyrstu stigum framkvæmda
- Talning á íbúðum í byggingu er yfirstandandi og niðurstöður verða kynntar 22. september
Greina má merki um kólnun á vinnumarkaði byggingariðnaðarins þar sem lausum störfum hefur fækkað á sama tíma og atvinnulausum hefur fjölgað. Þá eru einnig vísbendingar um samdrátt á fyrstu stigum framkvæmda, en vinna er hafin við hálfsárslega talningu á íbúðum í byggingu sem mun gefa skýrari upplýsingar um stöðu íbúðauppbyggingar þessa stundina.
Þetta er meðal þess sem fjallað er um í mánaðarskýrslu HMS fyrir ágústmánuð sem kom út í gær. Skýrsluna má nálgast með því að smella á hnappinn hér að neðan.
Mánaðarskýrsla HMS fyrir ágúst 2026
Óuppfyllt eftirspurn eftir vinnuafli í byggingariðnaði hefur dregist saman
Lausum störfum í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð hefur fækkað mikið og hafa þau verið um það bil helmingi færri á þessu ári heldur en á sama tíma í fyrra. Hlutfall lausra starfa í greininni hefur sömuleiðis lækkað mikið og mældist 3,4% á öðrum ársfjórðungi samanborið við 6,4% á öðrum ársfjórðungi í fyrra.
Á sama tíma og lausum störfum hefur fækkað hefur starfandi í byggingariðnaði fækkað lítillega á milli ára og atvinnulausum í greininni fjölgað talsvert. Óuppfyllt eftirspurn eftir vinnuafli í byggingariðnaði hefur því minnkað að undanförnu.
Byggingarleyfum fækkar fyrir uppbyggingu nýrra íbúða
Tæplega 5.800 íbúðir eru nú í byggingu á landinu öllu og framkvæmdum hefur verið lokið við rúmlega 1.500 nýjar íbúðir það sem af er ári samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu. Þó má greina vísbendingar um samdrátt á allra fyrstu stigum framkvæmda þar sem útgefnum byggingarleyfum fyrir nýjar íbúðir hefur fækkað að undanförnu.
Á mynd hér að neðan má sjá fjölda útgefinna byggingarleyfa fyrir uppbyggingu nýrra íbúða eftir árshelmingum frá 2020. Líkt og myndin sýnir voru 56 byggingarleyfi gefin út fyrir uppbyggingu nýrra íbúðarhúsa á fyrri helmingi þessa árs, en þau voru 66 á síðasta árshelmingi. Dregið hefur úr veitingu byggingarleyfa á síðustu misserum, en þau voru töluvert fleiri á tímabilinu 2021-2023. Samdráttinn má mæla hjá bæði einbýlishúsum og fjölbýlishúsum.
Mögulegur samdráttur í íbúðauppbyggingu á sér stað á sama tíma og fjárhagsstaða byggingarfyrirtækja hefur versnað, en Samtök iðnaðarins hafa greint frá því að vanskil í byggingariðnaði hafi stóraukist frá síðasta ári.
Á þessum tölum hvílir þó sá fyrirvari að eitt byggingarleyfi getur verið veitt fyrir uppbyggingu margra íbúða. Samdráttur í útgáfu byggingarleyfa fyrir fjölbýlishús bendir aftur á móti til þess að færri nýjar íbúðir verði fullbúnar í þeim byggingarverkefnum sem veitt var byggingarleyfi fyrir á nýliðnum árshelmingi.
Septembertalning á íbúðum í byggingu er yfirstandandi
Betri upplýsingar um framvindu íbúðauppbyggingar fást með talningu á íbúðum í byggingu, en HMS framkvæmir slíka talningu tvisvar sinnum á ári. Niðurstöður talningarinnar eru kynntar í mars og september ár hvert.
Vinna er hafin við septembertalningu HMS og upplýsingar í mælaborði íbúða í byggingu verða uppfærðar þegar þær berast frá talningunni. Kynning á niðurstöðum septembertalningar er fyrirhuguð þann 22. september næstkomandi.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




