13. ágúst 2026

Meirihluti íbúða í byggingu telst fokheldur eða lengra kominn

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Á landinu öllu eru nú 5.790 íbúðir í byggingu
  • Rúmlega helmingur íbúða í byggingu er við fokheldi eða lengra kominn
  • Talning á íbúðum í byggingu fer fram á næstu vikum

Samkvæmt mælaborði íbúða í byggingu eru 5.790 íbúðir skráðar í byggingu á landinu öllu. Auk þess er nú skráð 801 byggingaráform, en þau vísa til íbúða sem hafa fengið útgefið byggingarleyfi án þess að framkvæmdir séu hafnar. Framkvæmdum hefur verið lokið við rúmlega 1.500 íbúðir það sem af er ári.

Þetta er meðal þess sem lesa má úr mælaborðinu sem birtir samantekin gögn úr mannvirkjaskrá HMS um íbúðir í byggingu, byggingaráform og fullbúnar íbúðir eftir tegund húsnæðis, stærðarflokkun og framvindu.

Rúm­lega þriðj­ung­ur íbúða í bygg­ingu er við fok­heldi

Um það bil þriðja hver íbúð sem er í byggingu á landinu öllu telst fokheld. Við fokheldi hefur burðarvirki verið fullreist og byggingu hefur verið lokað fyrir veðri og vindum. Um 19% íbúða til viðbótar eru á matsstigi 5 þar sem útveggir eru fullbúnir með endanlegri klæðningu, gluggar og útihurðir hafa verið uppsettar, þak er fullfrágengið og innrými er tilbúið fyrir málningu, gólfefni og klæðningu.

Á myndinni hér að neðan má sjá dreifingu íbúða í byggingu eftir matsstigum og tegund húsnæðis samkvæmt skráningu í mannvirkjaskrá HMS.

Líkt og sjá má á myndinni hér að ofan er tæplega þriðjungur allra fjölbýlisíbúða í byggingu á matsstigi 2, sem vísar til þess þegar vinnu við undirstöður hefur verið lokið. Hlutfallslega færri sérbýli eru á því matsstigi, eða um 15%. Samkvæmt skráningu í mannvirkjaskrá eru fæstar íbúðir á matsstigi 3, hvort sem um er að ræða fjölbýli eða sérbýli, en á því matsstigi er burðarvirki byggingarinnar reist.

Fáar íbúð­ir á fyrstu mats­stig­um í Kópa­vogi

Dreifing íbúða í byggingu eftir matsstigum er ólík eftir sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Þar má helst nefna að í Kópavogi virðist lítið hafa verið um nýjar framkvæmdir að undanförnu þar sem nánast allar íbúðir í byggingu í sveitarfélaginu eru orðnar fokheldar.

Hlutfallslega flestar íbúðir eru á fyrri stigum framkvæmda í Reykjavík, þar sem um helmingur íbúða í byggingu er ýmist á matsstigi 1 eða 2. Hlutfallið er á bilinu 30-36% í Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsbæ.

 

Taln­ing á íbúð­um í bygg­ingu fer fram á næstu vik­um

HMS framkvæmir talningu á öllum íbúðum í byggingu tvisvar sinnum á ári og niðurstöðurnar eru kynntar í mars og september. HMS mun hefja vinnu við septembertalningu í næstu viku og upplýsingar í mælaborðinu verða uppfærðar þegar þær berast. Kynning á niðurstöðum septembertalningar er fyrirhuguð þann 22. september næstkomandi.

Nýr póstlisti hag­deild­ar HMS

Hagdeild HMS hefur útbúið nýjan póstlista fyrir alla sem vilja fylgjast með húsnæðismálum. Áskrifendur póstlistans munu fá helstu greiningar sendar til sín úr mánaðarskýrslum HMS, ásamt tilfallandi greiningum um fasteigna-, leigu-, lána- og byggingarmarkaðinn og auglýsingum um komandi viðburði.

Hægt er að skrá sig á póstlistann með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan.

Póstlisti Hagdeildar HMS

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS