22. maí 2025
17. febrúar 2023
Markaðskönnun um merkingar á hjólbörðum
Rétt er að árétta að allir hjólbarðar sem boðnir eru til sölu eiga að vera merktir á viðeigandi hátt. Merkingarnar eiga að vera á áberandi límmiða sem festur er á hjólbarðana eða sýnilegur fyrir kaupanda á sölustað.
Þann 17. október sl. voru innleiddir nýir hjólbarðamerkimiðar á Íslandi með reglugerð nr. 1221/2022. Reglugerðin er sett til innleiðingar á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2020/740 um merkingu hjólbarða að því er varðar eldsneytisnýtingu og aðra mæliþætti, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/1369 og niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 1222/2009.
Markaðskönnun á ástandi hjólbarðamerkinga
Í janúar fékk HMS BSI á Íslandi til að framkvæma skoðun á ástandi hjólbarðamerkinga. Skoðunin var framkvæmd á hjólbörðum í flokkum C1, C2 og C3 var skoðað og skráð ástand hjólbarðamerkinga hjá 13 aðilum víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu. Ástandið var almennt gott en yfir heildina voru 85% hjólbarðanna með fullnægjandi hjólbarðamerkingar. Í 15% tilfella voru hjólbarðarnir með gömlu merkingarnar.
Reglur um merkingar hjólbarða gera þá kröfu til dreifingaraðila hjólbarða að þeir upplýsi neytendur um eldsneytisnýtni (snúningsmótstaða) hjólbarða á kvarðanum A til E, veggrip á blautum vegi á kvarðanum A til E, snúningshávaða gefinn upp í dB(A), myndtákn fyrir vetrarhjólbarða ef við á og myndtákn fyrir hjólbarða sem henta fyrir norrænar aðstæður, ef við á.
Markmiðið er að tryggja að neytendur hafi greiðan aðgang að samræmdum upplýsingum um ofangreind atriði og að þeir verði betur upplýstir og velji frekar vörur sem ná fram frekari orkusparnaði og dragi úr umhverfisáhrifum.