19. desember 2024

Mánaðarskýrsla HMS desember 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Mánaðarskýrsla HMS fyrir desember 2024 er komin út, en hana má nálgast með því að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Í skýrslunni kemur meðal annars fram að Á fasteignamarkaði hefur veltan verið töluverð ef miðað er við árstíma, þrátt fyrir að hafa dregist nokkuð saman frá því í vor. Á byggingarmarkaði hafa yfir 3.400 nýbyggðar íbúðir verið teknar í notkun á þessu ári á landinu öllu sem er nokkuð meira en HMS spáði í septembertalningu.

Mánaðarskýrslu HMS má nálgast hér

Myndir að baki mánaðarskýrslunni má nálgast hér

Yfir tíu þús­und tóm­ar íbúð­ir á Ís­landi

Á fasteignamarkaði hefur veltan verið töluverð ef miðað er við árstíma, þrátt fyrir að hafa dregist nokkuð saman frá því í vor. Mest hefur dregið úr veltu í nágrenni höfuðborgarsvæðisins eftir því sem Grindavíkuráhrif hafa fjarað út.

Framboð íbúða til sölu hefur aukist hratt á síðustu mánuðum, eftir því sem kaupsamningum hefur fækkað og nýjar íbúðir sem seljast hægt hafa komið inn á markaðinn. Rúmlega 2.500 íbúðir eru til sölu á höfuðborgarsvæðinu og hafa þær ekki verið fleiri frá því mælingar hófust fyrir sex árum. Töluverð eftirspurn er hins vegar eftir ódýrum íbúðum, en þær eru lítill hluti markaðarins.

Tómar íbúðir eru fleiri en 10.000 á landinu, eða um 6,5% allra fullbúinna íbúða, samkvæmt varfærnu mati HMS byggðu á lögheimilisskráningu frá Þjóðskrá. Um 2.500 þessara íbúða eru taldar vera í Reykjavík. Í Múlaþingi, Skagafirði, Ísafirði og Borgarbyggð eru 15-20% íbúða taldar vera tómar, og er áætlað hlutfall tómra íbúða á Akureyri nálægt 10%.

Enn dreg­ur úr eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingi á leigu­mark­aði

Á leigumarkaði hefur miðgildi leiguverðs hækkað um 13% umfram annað verðlag milli nóvembermánaða 2024 og 2023. Verð lítilla leiguíbúða spannar stærra bil en áður sem er í samræmi við breikkandi bil á milli markaðsleigu og íbúða sem eru ekki reknar á hagnaðarforsendum.

Samkvæmt tölum frá vefnum Myigloo.is dregur úr eftirspurn á leigumarkaði, þar sem virkum leitendum á hvern samning fækkar. Virkir leitendur á síðunni voru þó 7% fleiri í nóvember miðað nóvember 2023.

Útistand­andi íbúða­lán heim­il­anna far­ið vax­andi að raun­virði

Á lánamarkaði voru útistandandi íbúðalán heimilanna 7% meiri í lok október en á sama tíma í fyrra. Þetta jafngildir um 1,8% aukning heildarútlána eftir að tekið er tillit til verðbólgu. 

Yfir 3.400 nýj­ar íbúð­ir tekn­ar í notk­un á ár­inu

Á byggingarmarkaði hafa yfir 3.400 nýbyggðar íbúðir verið teknar í notkun á þessu ári á landinu öllu. Þetta er nokkuð meira en HMS spáði í septembertalningu sinni, þar sem byggingaraðilar virðast hafa lagt aukna áherslu á að ljúka framkvæmdum sem voru hafnar í stað þess að hefja nýjar. Yfir 2.000 nýjar íbúðir hafa verið teknar í notkun á höfuðborgarsvæðinu, en þar af er tæpur helmingur þeirra í Reykjavík.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS