8. maí 2025
10. september 2021
Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir september
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Viðskipti dragast saman samhliða minnkun framboðs
- Viðskipti dragast saman samhliða minnkun framboðs
- Meðalsölutími fasteigna hættur að styttast en er nálægt sögulegu lágmarki
- Hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði lækkar í fyrsta sinn síðan í janúar
- Verð á sérbýli hækkar áfram meira en verð íbúða í fjölbýli
- Þinglýstum leigusamningum fækkar
- Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu stendur í stað eftir hækkunarhrinu síðustu mánaða
- Tekjur af útleigu á Airbnb aukast mikið en fjöldi leigueininga nokkuð stöðugur
Fjöldi kaupsamninga dregst áfram saman ásamt veltu
Nokkuð hefur dregið úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum. Á höfuðborgarsvæðinu dróst fjöldinn saman um 20% á milli mánaðanna júní og júlí og um 25% miðað við júlí í fyrra. Í mars var slegið met í fjölda kaupsamninga í stökum mánuði. Í nágrenni höfuðborgarsvæðis og á landsbyggð er fjöldi kaupsamninga enn mikill í sögulegu samhengi en fer þó minnkandi. Á landsbyggð dróst fjöldinn saman um 13% á milli mánaða júní og júlí. Í nágrenni höfuðborgarsvæðisins dróst fjöldinn saman um 4,2% á milli mánaða.
Velta á fasteignamarkaði dróst einnig saman á milli mánaða eða um 13,4% á höfuðborgarsvæðinu, 1,1% í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og um 21,2% annars staðar á landsbyggðinni. Ýmsar ástæður geta legið fyrir fækkun kaupsamninga. Til að mynda hefur dregið talsvert úr framboði en mun fleiri íbúðir hafa selst en hafa komið inn á markaðinn allt frá því í maí í fyrra. Minna framboð getur gert það að verkum að erfiðara er fyrir fólk að finna íbúð sem hentar því. Þá hefur mikil hækkun fasteignaverðs, hækkun vaxta og lækkun á hámarksveðhlutfalli líklega gert heimilum erfiðara um vik að fjármagna fasteignakaup.
Fjöldi auglýstra eigna á hverjum tíma sífellt minni
Núna í byrjun september voru tæplega 1.500 íbúðir til sölu á landinu öllu miðað við fasteignir.is en í maí í fyrra náði fjöldinn hámarki í um 4.000 talsins. Fjöldi auglýstra fasteigna hefur dregist saman síðan þá í öllum landshlutum að Norðurlandi vestra undanskildu en þar hefur fjöldinn staðið í stað. Mestur samdráttur í fjölda íbúða til sölu hefur verið á meðal íbúða í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu. Þær eru nú tæplega 500 talsins en voru flestar rúmlega 1.800 í maí í fyrra sem er um 72% samdráttur.
Sölutími hættur að styttast og hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði lækkar
Samkvæmt vísitölu söluverðs HMS hækkaði íbúðaverð að jafnaði um 0,4% í júlí frá fyrri mánuði sem var dregið áfram af 2,6% hækkun sérbýla á meðan verð á íbúðum í fjölbýli stóð í stað. Tólf mánaða hækkun mældist 13,3% í júlí sem er lækkun frá því í júní þegar hún mældist 14,5%. Þar af var hækkunin 12,6% á meðal íbúða í fjölbýli en 16,9% á meðal sérbýla.
Hækkun íbúðaverðs mælist nokkuð meiri þegar miðað er við pöruð viðskipti, þ.e. hækkun á sömu íbúðum í endurteknum viðskiptum, en það eru meiri sveiflur á milli mánaða á þeim mælikvarða. Samkvæmt vísitölu paraðra viðskipta hafa íbúðir í fjölbýli á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 15,6% á síðustu tólf mánuðum og sérbýlin hækkað um 24%.
Sölutími fasteigna miðað við þriggja mánaða meðaltal hefur lengst lítillega á höfuðborgarsvæðinu og í nágrenni þess í nýjustu mælingu en er þó nálægt sögulegu lágmarki sem mældist í síðasta mánuði. Ef ekki er tekið þriggja mánaða meðaltal má sjá meiri lengingu sölutíma. Annars staðar á landsbyggðinni hefur sölutíminn ekki mælst áður jafn stuttur og nú.
Allt frá janúar á þessu ári hefur íbúðum sem seljast yfir ásettu verði fjölgað á höfuðborgarsvæðinu, nágrenni þess og á landsbyggð þar til nú, miðað við þriggja mánaða hlaupandi meðaltal af hlutfalli kaupverðs ásetts verðs. Í nýjustu mælingu fyrir höfuðborgarsvæðið lækkar hlutfallið í fyrsta skipti síðan í janúar. Lækkunin nemur um 1,3 prósentustigum á milli mánaða. Hlutfall íbúða sem seldust á yfirverði var 37,7% á höfuðborgarsvæði, 19,5% á landsbyggð og 15,6% í nágrenni höguðborgarsvæðis.
Leiguverð stendur í stað á höfuðborgarsvæðinu og samningum fækkar
Ársbreyting fjölda þinglýstra leigusamninga á mánuði er áfram neikvæð. Í júlí nam breytingin á höfuðborgarsvæðinu -15% miðað við sama mánuð í fyrra. Hins vegar er fjölgun miðað við fyrstu sjö mánuði ársins í sama sama tímabil í fyrra, eða um 3%. Fjölgun milli ára átti sér einkum stað í febrúar og fram í apríl en í sumar hefur samningum farið fækkandi miðað við sömu mánuði í fyrra.
Vísitala HMS fyrir leiguverð á höfuðborgarsvæðinu stendur nánast í stað á milli mánaðanna júní og júlí eftir að hafa hækkað í hverjum mánuði síðan í mars á þessu ári en frá janúar hefur leiguverð hækkað um 2,1% á svæðinu. Það dregur örlítið úr árshækkun leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu en tólf mánaða hækkunartakturinn lækkar úr tæplega 1,5% í um 1%.
Tekjur á Airbnb aukast en ekki merki um mikla fjölgun leigueininga
Tekjur af útleigu á Airbnb hafa verið að aukast töluvert á síðustu mánuðum eftir mikla lægð síðastliðið ár í kjölfar heimsfaraldursins. Þrátt fyrir talsverða aukningu tekna á skammtímaleigumarkaði höfuðborgarsvæðisins er ekki hægt að greina mikla fjölgun íbúða á þeim markaði. Frá því í febrúar hefur fjöldinn verið nokkuð stöðugur en hann jókst ögn í maí og júní en lækkaði svo aftur í júlí. Fækkun leigueininga á milli júní og júli skýrist væntanlega að einhverju leyti af nýrri smitbylgju kórónuveirunnar sem fór af stað í sumar og virðist nú vera í rénun. Á móti hefur nýtingarhlutfall leigueininga rokið upp.
Mánaðarskýrsluna í heild sinni má nálgast hér
Nánari upplýsingar veitir Ólafur Sindri Helgason, yfirhagfræðingur HMS: olafur.helgason@hms.is
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS