7. maí 2025
12. október 2020
Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir október 2020
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Skammtímavísir HMS góður mælikvarði á umsvif á fasteignamarkaði
Skammtímavísir HMS góður mælikvarði á umsvif á fasteignamarkaði
Nýr mælikvarði HMS, sem gefur vísbendingu um umsvif á fasteignamarkaði með mun minni töf en áður, hefur reynst vel til að mæla umsvif á fasteignamarkaði. Það sem mælikvarðinn gerir er að mæla hversu margar íbúðir eru teknar af sölu á hverjum tíma. Mælikvarðinn gefur mjög góða vísbendingu um sölu fasteigna nánast í rauntíma og mun fyrr en opinberar tölur geta sagt fyrir um. Á landinu öllu í júlí voru til að mynda 1.219 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði gefnir út, sem er rúmlega 30% meira en á sama tíma í júlí í fyrra. Það er því ljóst að skammtímamælikvarðinn hefur sannað gildi sitt þar sem þetta er í samræmi við það sem hann sagði til um í júlí þegar hann var birtur í fyrsta sinn í mánaðarskýrslu HMS.
Samkvæmt skammtímavísinum virðist enn vera mikið líf á fasteignamarkaði og var metfjöldi eigna tekinn úr birtingu í september sem gefur til kynna að ekkert lát sé á fasteignakaupum landsmanna um þessar mundir.
Vísbendingu um mikil umsvif á markaði má einnig sjá í gögnum um meðalsölutíma fasteigna sem hefur verið sögulega stuttur undanfarna mánuði og hefur fasteignaverð líka verið að hækka umtalsvert. Árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mældist 4,5% í ágúst miðað við pöruð viðskipti (verðbreyting er mæld þegar eignin er seld öðru sinni). Þótt dregið hafi úr árshækkun frá mánuðinum á undan þá hefur hækkunartakturinn legið upp á við frá því í byrjun árs. Meðalsölutími eigna hefur verið að dragast saman og þá sérstaklega meðal dýrari eigna. Meðalsölutími íbúða sem seldust á 90-120 m.kr. var til að mynda orðinn lægri en meðal íbúða á bilinu 35-90 m. kr. eða 49 dagar á móti 52.
Samdráttur á byggingamarkaði
Samkvæmt nýjustu talningu Samtaka Iðnaðarins má merkja mikinn samdrátt í fjölda íbúða í byggingu, einkum á fyrstu byggingarstigum. Samkvæmt talningunni eru um 4.946 íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum en voru um 6.005 í hausttalningunni fyrir ári síðan. Þetta samsvarar um 18% samdrætti. Ef skoðaður er fjöldi íbúða á fyrstu byggingarstigum, þ.e. að fokheldu, sést að um 41% samdráttur er frá hausttalningunni fyrir ári síðan.
Niðurstöðurnar benda til þess að talsvert færri fullgerðar íbúðir muni koma inn á markaðinn á næstu árum. Samkvæmt spá SI gætu um 1.986 íbúðir verið fullgerðar á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannasveitarfélögum á árinu 2021 og um 1.923 árið 2022. Í báðum tilfellum er um að ræða töluverðan samdrátt frá spá SI í september í fyrra.
Samkvæmt grunnspá síðustu íbúðaþarfagreiningar HMS sem framkvæmd var í lok síðasta árs og nær til ársins 2040 þyrfti að byggja um 1.800 íbúðir á hverju ári að meðaltali um land allt til að mæta íbúðaþörf landsmanna, bæði þeirri sem telst í dag óuppfyllt og þeirri sem myndast á næstu árum. Því gæti myndast framboðsskortur ef íbúðafjárfesting heldur áfram að dragast saman og færri nýjar íbúðir fara að koma inn á markaðinn.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS