1. júlí 2025
14. apríl 2021
Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir apríl 2021
Um 60% samdráttur íbúða til sölu á höfuðborgarsvæðinu á einu ári
Um 60% samdráttur íbúða til sölu á höfuðborgarsvæðinu á einu ári
Mikil ásókn í íbúðarhúsnæði ásamt takmörkuðu framboði einkennir íbúðamarkaðinn um þessar mundir og litar nær allar tölur tengdar honum. Velta á fasteignamarkaði er enn með mesta móti, miðað við árstíma, þó nokkuð hafi dregið úr umsvifum frá því í haust. Útgefnir kaupsamningar í febrúar, fyrir stök íbúðaviðskipti, voru 1.048 talsins sem er um 9,7% meira en í janúar, en sé litið á febrúar í fyrra þá var aukningin um 22% milli ára.
Á síðustu 12 mánuðum hefur dregið úr fjölda íbúða til sölu í öllum landshlutum nema á Norðvesturlandi þar sem þeim fjölgaði um 24,1%, en fækkunin hefur verið langmest á höfuðborgarsvæðinu, eða um 58,4%.
Íbúðaverð mun halda áfram að hækka miðað við væntingar
Sé miðað við vísitölu íbúðaverðs mældist tólf mánaða hækkun á höfuðborgarsvæðinu 7,5% í febrúar miðað við 7,6% í janúar. Væntingar um hækkun fasteignaverðs fara vaxandi, en samkvæmt nýrri skoðanakönnun sem Zenter framkvæmdi fyrir HMS taldi 17,1% aðspurðra að fasteignaverð myndi hækka töluvert í sínu sveitarfélagi á næstu 12 mánuðum samanborið við 10,8% þegar spurningin var fyrst höfð með í nóvember síðastliðnum.
Vísitala HMS fyrir leiguverð á höfuðborgarsvæðinu lækkar talsvert á milli mánaða
Tólf mánaða breyting vísitölu HMS fyrir leiguverð á höfuðborgarsvæðinu gefur vísbendingu um að leiguverð sé farið að lækka nokkuð meira en áður og mælist -2,6% í febrúar, en vísitalan lækkar um 1,2% á milli mánaða. Tólf mánaða breyting vísitölunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur mælst neikvæð síðan í október á síðasta ári.
Hlutfall þeirra sem telja það öruggt eða líklegt að þeir verði á leigumarkaði að hálfu ári liðnu eykst á milli mælinga, úr 14,4% í 15,8%. Þetta er hlutfall af heildinni og er hærra en hlutfall þeirra sem segjast nú þegar vera á leigumarkaði. Þetta gæti því verið vísir um að einhver fjölgun muni eiga sér stað á leigumarkaðnum eftir hálft ár. Líklegt er að hluti þeirra sem býr í foreldrahúsum færi sig yfir á leigumarkað á næstu mánuðum, sérstaklega í ljósi þess að leiguverð fer lækkandi á höfuðborgarsvæðinu.
Fækkun íbúða í byggingu samkvæmt talningu en batamerki á byggingarmarkaði
Talning Samtaka iðnaðarins leiðir í ljós 20% fækkun íbúða í byggingu á landinu öllu miðað við sama tíma í fyrra, en mestur er samdrátturinn á íbúðum sem eru á byggingarstigi 4 og 5, eða 23%.[1] Samdrátturinn mælist mestur á höfuðborgarsvæðinu, en eins og stendur eru um 3.523 íbúðir í byggingu á svæðinu sem er um 21% minna en fyrir ári síðan þegar 4.452 íbúðir voru í byggingu.
Þrátt fyrir samdrátt í fjölda íbúða í byggingu má greina ýmis jákvæð teikn á lofti um að byggingarmarkaðurinn sé farinn að taka aðeins við sér. Fjöldi íbúða í byggingu á fyrstu byggingarstigum á höfuðborgarsvæðinu í mars fjölgaði um 10% frá hausttalningunni. Miðað við nýjustu tölur um fjölda starfandi í byggingariðnaði sem ná fram í desember 2020 dró töluvert úr fækkun starfandi í greininni miðað við tólf mánaða breytingu frá vori 2020 en hins vegar dregur aðeins úr innflutningi á byggingarhráefnum eftir töluverða aukningu á seinni hluta ársins. Það gæti hins vegar breyst á næstu mánuðum þar sem fjöldi krana í notkun hefur aukist töluvert á síðustu tveimur mánuðum ásamt því að nýskráningum fyrirtækja í greininni snarfjölgar.
Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.
Myndir úr skýrslunni má nálgast hér - SVG
Myndir úr skýrslunni má nálgast hér - PNG
[1] Byggingarstig 4 merkir að íbúð hefur náð fokheldu en 5 merkir að hún sé tilbúin til innréttingar.