24. apríl 2020

Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir apríl 2020

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Vísbendingar um hógværan samdrátt á fasteignamarkaði

Vísbendingar um hógværan samdrátt á fasteignamarkaði

  • Þróun á fasteignamarkaði á næstu misserum mun helst ráðast af efnahags- og atvinnuhorfum og á aðgengi fólks að fjármagni.
  • Dregið hefur úr birtingu nýrra íbúðaauglýsinga og einnig hefur dregið úr því að auglýsingar séu teknar út úr birtingu, til að mynda vegna sölu. Samdrátturinn í þessum tölum er þó óverulegur og eru þær á svipuðu reiki og á sama tíma í fyrra.
  • Leiguverð hefur hækkað um 40% á höfuðborgarsvæðinu frá því í ársbyrjun 2016 en íbúðaverð um 42% miðað við vísitölur Þjóðskrár.
  • Vextir á óverðtryggðum lánum hafa haldið áfram að lækka í kjölfar stýrivaxtalækkanna. Almennt hafa bankarnir verið að lækka sína vexti meira en lífeyrissjóðirnir að undanförnu.
  • Byggingargeirinn var byrjaður að sýna merki um samdrátt á fyrstu mánuðum ársins. Verðmæti innflutnings á byggingahráefnum hefur ekki verið jafn lítið síðan í apríl 2018 miðað við 12 mánaða meðaltal og síðan í apríl 2015 miðað við þriggja mánaða meðaltal.

Fasteignamarkaður

Á höfuðborgarsvæðinu hefur fjöldi kaupsamninga haldist nokkuð stöðugur undanfarin fjögur ár en annarstaðar á landinu hefur aðeins dregið úr viðskiptum. Bæði á höfuðborgarsvæðinu og annarsstaðar hefur sala nýrra íbúða stóraukist á undanförnum árum í takt við aukið byggingarmagn en hins vegar hefur dregið úr viðskiptum með aðrar íbúðir.

Meðalsölutími íbúðarhúsnæðis hefur almennt lengst á undanförnum mánuðum í samanburði við sama tíma árið áður. Það sem af er ári hefur meðalsölutími nýrra íbúða hækkað á höfuðborgarsvæðinu um 20% á milli ára og um 7% á öðrum íbúðum.

Leigumarkaður

Fjöldi nýrra þinglýstra leigusamninga  hefur almennt farið vaxandi á síðastliðnum tveimur árum sé tekið mið af þinglýsingum eftir að hafa verið í farið almennt fækkandi frá 2013.

Lánamarkaður

Vextir á íbúðalánum hafa almennt farið lækkandi hér á landi frá því að Seðlabankinn hóf lækkunarferli á meginvöxtum sínum fyrir rétt tæpu ári. Það sem af er þessu ári hafa breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum sem bankarnir bjóða heimilunum lækkað að meðaltali um ríflega eitt prósentustig  samanborið við 0,6 prósentustig að meðaltali hjá lífeyrissjóðunum ef einungis er horft til lána með sömu hámarks veðskilyrðin, þ.e.a.s. 70%.

Byggingarmarkaður

Nýjustu tölur fyrir fjölda starfandi innan byggingargeirans ná út árið 2019. Þar sést að fjöldi starfandi í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð dróst saman um 3,2% frá desember 2018 til desember 2019. Þar af hefur fjöldi erlendra starfsmanna dregist saman um 10,4%

Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.

 

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS