8. maí 2025
14. ágúst 2020
Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir ágúst 2020
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Enn mikið líf á fasteignamarkaði
Enn mikið líf á fasteignamarkaði
- Enn er mikið líf á fasteignamarkaði miðað við skammtímavísa hagdeildar HMS.
- Vísitala paraðra viðskipta hækkaði um 7,9% í nágrenni höfuðborgarsvæðisins á milli ára, 5,1% á höfuðborgarsvæðinu og 3,5% á landsbyggðinni.
- Hlutfall fyrstu kaupenda á fyrri helmingi þessa árs hefur aldrei verið hærra svo langt aftur sem gögn ná en á fyrstu tveimur ársfjórðungum var hlutfall þeirra 30% og 28%.
- Nokkuð hefur dregið úr íbúðum til sölu á höfuðborgarsvæðinu en nú eru um 1700 íbúðir til sölu samanborið við ríflega 2000 í maí síðastliðnum.
- Meðalsölutími nýrra íbúða í júní á landsbyggðinni dróst saman um 32% á milli ára en lengist lítillega á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar styttist sölutími annarra íbúða á höfuðborgarsvæðinu.
- Leiguverð lækkar annan mánuðinn í röð í júní á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt leiguverðsvísitölu HMS. Árshækkun leiguverðs á svæðinu nemur nú um 1,1%.
- Leiguverð hækkar hins vegar að meðaltali í nágrannasveitarfélögum og annars staðar á landsbyggðinni.
- Þinglýstum leigusamningum fjölgar á mikið á landinu í júní samanborið við sama mánuð í fyrra. Fjölgun samninga á 2. ársfjórðungi miðað við sama tíma í fyrra nemur um 16% á höfuðborgarsvæðinu, 15% í nágrannasveitarfélögum og 17% annars staðar á landsbyggðinni.
- Leigjendur telja áfram ólíklegra að þeir verði áfram á leigumarkaði eftir hálft ár miðað við nýjustu könnun samanborið við könnun í byrjun árs.
- Júní var umsvifamesti mánuður í hreinum nýjum útlánum bankanna síðan árið 2013 en sá umsvifaminnsti hjá lífeyrissjóðunum síðan 2008.
Fasteignamarkaður
Skammtímavísar hagdeildar HMS benda til að enn sé mikið líf á fasteignamarkaði ef marka má tölur um fjölda íbúða sem teknar eru úr birtingu af auglýsingasíðum fasteigna. Mikil umsvif á fasteignamarkaði gefa til kynna að skarpar vaxtalækkanir á íbúðalánum undanfarið vegi upp á móti auknu atvinnuleysi og efnahagssamdrætti.
Vísitala paraðra viðskipta sýnir að fasteignaverð hefur undanfarið risið upp í öllum landshlutum. Tólf mánaða hækkun fasteignaverðs í júní var mest í nágrenni höfuðborgarsvæðisins en frá sama tíma í fyrra hækkaði vísitalan á svæðinu um 7,9% að nafnvirði. Minni hækkanir voru á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Meðal nýrra íbúða hefur íbúðum sem seldar eru á yfirverði fækkað hlutfallslega og íbúðum á undirverði fjölgað.
Hlutfall fyrstu kaupenda á fyrri helmingi þessa árs hefur aldrei verið hærra svo langt aftur sem gögn ná. Niðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar HMS gefa vísbendingu um mikinn áhuga svarenda á fasteignakaupum á næstu mánuðum. Sér í lagi hefur áhuginn aukist meðal fólks sem býr í foreldrahúsum en 26% þeirra segjast vera í fasteignahugleiðingum.
Nokkuð hefur dregið úr framboði á íbúðum til sölu en nú eru um 1700 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu en voru ríflega 2000 í maí síðastliðnum. Einnig hefur dregið úr framboði á landsbyggðinni.
Nokkur breyting hefur verið á meðalsölutíma íbúða, bæði á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni. Sölutími nýrra íbúða á landsbyggðinni dróst talsvert saman á milli ára, en sölutími annarra íbúða lengdist. Á höfuðborgarsvæðinu lengdist meðalsölutími nýrra íbúða lítillega en hins vegar styttist meðalsölutími annarra íbúða á því svæði.
Hlutfall íbúa sem búsettir eru í minni byggðarkjörnum hefur farið lækkandi ár frá ári eftir aldamót. Í upphafi þessarar aldra bjuggu um 21% landsmanna í byggðarkjörnum með færri en 2.000 íbúa en nú um síðustu áramót stóð hlutfallið í rúmum 15%.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS