22. febrúar 2024

Mánaðarskýrsla hagdeildar HMS fyrir febrúar 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,2% að raunvirði á milli janúarmánaða 2023 og 2024.
  • Undir lok síðasta árs gengu samtals 294 íbúðir kaupum og sölum í heildsölu. Af þeim voru 89 keyptar á síðustu vikum ársins ætlaðar Grindvíkingum.
  • 224 nýjar íbúðir voru fullgerðar á fyrsta mánuði ársins. Flestar þeirra eða um 100  eru í Reykjavík en um 70 í Kópavogi.
  • Á nýliðnu ári og í fyrsta skipti voru hrein útlán lífeyrissjóða meiri en útlán banka eða 75 ma. kr. samanborið við 63 ma. kr. hjá bönkum. Hrein ný útlán HMS til einstaklinga voru neikvæð um samtals 12 ma. kr. í fyrra.
  • Árið 2023 urðu 302 fyrirtæki í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð gjaldþrota sem er fjölgun um 243% frá fyrra ári. Leita þarf aftur til ársins 2011 til að finna viðlíka fjölda gjaldþrota í greininni.

 

Meira líf á fast­eigna­mark­aði seinni hluta árs­ins eft­ir ró­lega byrj­un

Kaupsamningar á nýliðnu ári voru 9.156 og var heildarfjárhæð þeirra 644,4 ma. kr. Þar af voru gerðir 950 kaupsamningar í desembermánuði sem er vel yfir mánaðarmeðaltali ársins m.a. vegna magnkaupa á íbúðum. Á nýliðnu ári fækkaði kaupsamningum á fyrri hluta ársins en fjölgaði á seinni hluta ársins. Kaupsamningum um sérbýli fækkaði hlutfallslega meira en kaupsamningum um fjölbýli líkt og búast má við þegar fasteignamarkaður dregst saman þar sem erfiðara er fyrir íbúðakaupendur að fjármagna stærri eignir í hærra vaxtastigi. Kaupsamningar á síðasta ári voru álíka margir og 2014.

Um fimmt­ung­ur nýrra íbúða til sölu 2 her­bergja eða minni

Ef rýnt er í samsetningu framboðs nýrra íbúða kemur í ljós að einungis um 20% nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu eru með 2 eða færri herbergi. Þetta er markverð breyting frá samsetningu nýrra íbúða í byrjun heimsfaraldurs, en þá var hlutfallið nær helmingi hærra eða um 30%. Í nágrannasveitarfélögum  höfuðborgarsvæðis og annars staðar á landinu er framboð nýrra lítilla íbúða óverulegt.

Hrein ný íbúða­lán ekki lægri síð­an árið 2016

Hrein ný íbúðalán fjármálastofnana til heimila í fyrra námu 126 ma. kr. og hafa á föstu verðlagi ekki verið minni síðan árið 2016. Hrein ný útlán drógust meira saman en velta á fasteignamarkaði. Frá árinu 2021 drógust hrein ný útlán á föstu verðlagi saman um 57% en kaupsamningum fækkaði um 34%. Á sama tíma hefur íbúðum í eigu lögaðila og einstaklinga sem eiga fleiri en eina íbúð fjölgað hraðar en íbúðum í eigu einstaklinga sem eiga eina íbúð. Hafa verður í huga að útlán til þessara aðila eru ekki inni í framangreindum tölum.

Nán­ast eng­in ný út­lán til mann­virkja­gerð­ar

Ný lán bankanna til bygginga- og mannvirkjagerðar voru mjög lítil eða 33 milljónir í desembermánuði. Til samanburðar voru lánin tæpir 9 ma. kr. í desember 2022. Að jafnaði höfðu bankarnir lánað til byggingariðnaðarins um 4,5 ma. kr. á mánuði allt síðasta ár. Leita þarf til ágústmánaðar 2019 til að finna jafn lítil útlán til byggingarfyrirtækja í einum mánuði.

Útistandandi lán banka til byggingarstarfsemi og mannvirkjagerðar lækkuðu um 1,2 ma. kr. í desember og var það í fyrsta skipti síðan á haustmánuðum 2021 sem þau lækka milli mánaða.

Tölur um útlán til byggingaraðila benda til þess að ekki sé verið að fjármagna ný verkefni og fjármögnun vegna nýrra íbúða sem seljast sé að greiðast upp. Uppgreiðsluhraði framkvæmdafjármögnunar ræðst m.a. af sölutíma fasteigna. Sölutími fasteigna var um einn mánuður á haustið 2021 fór upp í fimm mánuði á vormánuðum 2023 en er nú um fjórir mánuðir.

Mánaðarskýrsla febrúar 2024

Mánaðarskýrsla febrúar 2024

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS