5. febrúar 2026

Mælaborð fyrstu kaupenda uppfært

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Uppfært mælaborð fyrstu kaupenda sýnir nú aldur og fjölda kaupenda
  • Meðalaldur fyrstu kaupenda hefur haldist nokkuð stöðugur frá árinu 2007
  • Hlutfall fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði hefur aukist frá árinu 2024

Mælaborð fyrstu kaupenda á heimasíðu HMS hefur verið uppfært. Nú er hægt að nálgast upplýsingar um fjölda og aldur kaupenda eftir ársfjórðungum í mælaborðinu, sem nálgast má hér að neðan.

Markmið uppfærslunnar er að veita betri upplýsingar um stöðu fyrstu kaupenda á húsnæðismarkaði, í samræmi við markmið HMS um að efla upplýsingagjöf og aðgengi að gögnum. Samhliða uppfærslunni verður annað mælaborð um fjölda og aldur kaupenda lokað.

Fyrstu kaup­end­ur eru að með­al­tali 33 ára gaml­ir

Frá mælaborðinu má meðal annars lesa að meðalaldur fyrstu kaupenda hefur haldist tiltölulega stöðugur á síðustu tveimur áratugum og er að jafnaði um 33 ár yfir tímabilið í heild.

Þá má einnig sjá á mælaborðinu að hlutfall fyrstu kaupenda af heildarfjölda kaupenda hefur sveiflast nokkuð yfir tímabilið, á bilinu um 25 til 35 prósent. Hæstu og lægstu gildi komu fram á tímamótum í samfélaginu, bæði fyrir og eftir fjármálahrunið og í kringum kórónuvírusfaraldurinn, þegar miklar breytingar urðu á efnahagslegum aðstæðum og vaxtastigi.

Að meðaltali voru fyrstu kaupendur um 30 prósent allra kaupenda yfir tímabilið, eins og sjá má á myndinni hér að ofan. Hlutdeild fyrstu kaupenda á fasteignamarkaði hefur hins vegar aukist töluvert á síðustu mánuðum, en hún dróst hratt saman árið 2024 þegar kaupsamningum annarra kaupenda fjölgaði eftir jarðhræringar í Grindavík.

Mælaborð fyrstu kaupenda

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS