24. maí 2024

Lokauppgjör húsnæðisbóta fyrir 2023 verður birt á næstu vikum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Bótaþegar sem hafa fengið of- eða vangreiddar húsnæðisbætur árið 2023 fá leiðréttingu á næstu vikum
  • HMS greiddi 8,5 milljarða króna í húsnæðisbætur árið 2023
  • Of- eða vangreiddar bætur eru taldar nema um 7 prósentum af heildarfjárhæð bóta

Lokauppgjör húsnæðisbóta fyrir árið 2023 verður birt bótaþegum á næstu vikum, þar sem húsnæðisbætur verða leiðréttar ef þær hafa verið of- eða vangreiddar. Fyrstu tölur benda til þess að 54 prósent af bótaþegum muni fá leiðréttingu á húsnæðisbótum vegna þessa og að of- eða vangreiddar húsnæðisbætur hafi numið um 7 prósentum af heildargreiðslum húsnæðisbóta árið 2023.

HMS framkvæmir árlega endurreikning og uppgjör á húsnæðisbótum síðastliðins árs þegar álagning skattyfirvalda liggur fyrir og leiðréttir húsnæðisbætur ef bótaþegar hafa fengið ýmist of- eða vangreitt. Alls greiddi stofnunin 8,5 milljarða króna í húsnæðisbætur árið 2023 til um 21 þúsund heimila.

Myndin hér að ofan sýnir fyrstu niðurstöður lokauppgjörs húsnæðisbóta skipt niður eftir hlutföllum sem fer eftir fjölda of- eða vangreiðslna og þeirra sem eru með lokauppgjör sem þarfnast ekki leiðréttingar. Líkt og myndin sýnir benda fyrstu niðurstöður til þess að 33 prósent bótaþega hafi fengið vangreitt og 21 prósent þeirra fengið ofgreitt.

Hlutfall fjárhæða fer eftir hve háar skuldir og inneignir eru miðað við heildargreiðsluna á árinu. Nánari skoðun og leiðréttingar munu eiga sér stað fyrir lokauppgjör 2023, sem gæti leitt til breytinga á hlutföllum of- og vangreiðslna. Er því um að ræða fyrstu tölur og uppgjörið birt með þeim fyrirvara.

HMS áætlar húsnæðisbætur samkvæmt upplýsingum sem liggja fyrir hverju sinni og hefur reglubundið eftirlit með umsóknum um húsnæðisbætur til að staðfesta rétt til bóta. Sömuleiðis er HMS í reglubundnu sambandi við húsnæðisbótaþega sem bera ábyrgð á að veita réttar upplýsingar um sínar aðstæður. Fyrstu niðurstöður úr lokauppgjörinu sýna mikilvægi þess að hafa eftirlit með umsóknum um húsnæðisbætur og tryggja að réttar upplýsingar liggi fyrir svo húsnæðisstuðningurinn sé réttmætur og áreiðanlegur.

Viðtakendur húsnæðisbóta munu fá senda tilkynningu í tölvupósti þegar lokauppgjör þeirra hefur verið birt á island.is.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS