3. júní 2026

Lokauppgjör húsnæðisbóta 2025 verður birt á næstu vikum

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Leiðréttingar verða gerðar hjá þeim sem hafa fengið of- eða vangreiddar húsnæðisbætur á næstu vikum
  • Rúmur helmingur bótaþega fá leiðréttingu samkvæmt fyrstu tölum
  • Of- eða vangreiðslur nema um 6 prósentum af heildarfjárhæð bóta ársins 2025

Meira en 50 prósent þeirra sem fengu greiddar húsnæðisbætur árið 2025 geta vænst þess að fá leiðréttingu á húsnæðisbótum vegna ofgreiðslna eða vangreiðslna. Þetta er á meðal niðurstaðna árlegs endurútreiknings HMS á húsnæðisbótum í tengslum við lokauppgjör þeirra.

Um 11 millj­­arð­­ar til 23 þús­und heim­ila

HMS framkvæmir árlega endurreikning og uppgjör á húsnæðisbótum síðastliðins árs þegar álagning skattyfirvalda liggur fyrir. Í kjölfarið leiðréttir stofnunin húsnæðisbætur þeirra bótaþega sem hafa fengið ýmist of- eða vangreiddar bætur. Alls greiddi stofnunin 11 milljarða króna í húsnæðisbætur árið 2025 til um 23 þúsund heimila.

Fyrstu töl­ur benda til þess að leið­rétta þurfi hús­næð­is­bæt­ur meiri­hluta bóta­þega

Lokauppgjör húsnæðisbóta fyrir árið 2025 verður birt bótaþegum á næstu vikum, þar sem húsnæðisbætur verða leiðréttar ef þær hafa verið of- eða vangreiddar. Fyrstu tölur benda til þess að 54,5 prósent bótaþega muni fá leiðréttingu á húsnæðisbótum vegna þessa.

Myndin hér að ofan sýnir frumniðurstöður lokauppgjörsins eftir því hvort bótaþegar hafi fengið of- eða vangreiddar bætur eða hvort ekki sé þörf á leiðréttingu. Líkt og myndin sýnir benda fyrstu niðurstöður til þess að 27 prósent bótaþega hafi fengið vangreiddar bætur og 27 prósent þeirra hafi fengið ofgreiddar bætur.

Hlutfall fjárhæða fer eftir hve háar skuldir og inneignir eru miðað við heildargreiðsluna á árinu. Niðurstöður uppgjörsins sýna fram á að 6 prósent af heildargreiðslu húsnæðisbóta ársins 2025 hafi annað hvort verið of- eða vangreiddar. Nánari skoðun og leiðréttingar munu eiga sér stað fyrir lokauppgjör 2025, sem gæti leitt til breytinga á hlutföllum of- og vangreiðslna. Er því um að ræða fyrstu tölur og uppgjörið birt með þeim fyrirvara.

 

Flestar inneignir og skuldir eru innan við 100 þúsund krónur

Línuritin hér að neðan sýna gróflega hvernig ofgreiðslur og vangreiðslur skiptast eftir fjárhæðabilum. Eins og sést eru flestar skuldir undir 100 þúsund krónum eða tæp 83 prósent. Um 91 prósent inneigna eru jafnframt undir 100 þúsund krónum og um 75 prósent þeirra eru undir 50 þúsund krónum.

Algengustu ástæðurnar fyrir of- eða vangreiðslum húsnæðisbóta eru breytingar á tekjum og eignum bótaþega, sem eru jafnframt lykilforsendur við útreikning húsnæðisbóta. HMS áætlar húsnæðisbætur á grundvelli þeirra upplýsinga sem liggja fyrir hverju sinni og hefur reglubundið eftirlit með umsóknum til að staðfesta bótarétt. Sömuleiðis er HMS í reglubundnu sambandi við bótaþega sem bera ábyrgð á að veita réttar upplýsingar um sínar aðstæður.

Niðurstöður lokauppgjörsins undirstrika mikilvægi þess að hafa virkt eftirlit með umsóknum um húsnæðisbætur og tryggja að upplýsingar séu réttar þannig að húsnæðisstuðningurinn sé bæði réttmætur og áreiðanlegur.

Til­kynn­ing um upp­gjör birt á is­land.is 

Viðtakendur húsnæðisbóta munu fá senda tilkynningu í tölvupósti þegar lokauppgjör þeirra hefur verið birt á island.is. Nánari upplýsingar varðandi uppgjörið og húsnæðisbætur almennt má einnig nálgast á þjónustuvef HMS á island.is.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS