21. apríl 2026
21. apríl 2026
Lokað fyrir skráningar á húsnæðisdaginn en hægt að fylgjast með í streymi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
- Búið er að loka fyrir skráningar á húsnæðisdag HMS þann 22. apríl
- Hægt verður að fylgjast með húsnæðisdeginum í beinu streymi á heimasíðu HMS
- Á húsnæðisdeginum verður ítarlega farið yfir íbúðaþörf, skipulagsmál og stöðu á leigumarkaði með utanaðkomandi gestum
Ekki er lengur hægt að skrá sig á húsnæðisdag HMS, sem verður haldinn þann 22. apríl í Borgartúni 21, þar sem hámarksfjölda gesta er náð. Áhugasamir geta þó enn fylgst með í beinu streymi á hms.is/streymi.
Húsnæðisdagur HMS
Hægt er að nálgast fulla dagskrá fyrir húsnæðisdaginn með því að smella hér. Meginviðfangsefni dagsins eru eftirfarandi:
- Hversu mikið þarf að byggja?
- Hvernig vill fólk búa í höfuðborginni?
- Hver er staðan á leigumarkaði?
Á meðal gesta sem koma fram á fundinum eru Þorsteinn Víglundsson formaður SI, Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Pétur Marteinsson oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS




