24. júní 2026

Lok náms til að gera eignaskiptayfirlýsingar og merkjalýsingar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Tveimur framhaldsnámskeiðum HMS og Endurmenntunar HÍ lauk nýlega, en þau veita þátttakendum réttindi til að sækja um leyfi til gerðar eignaskiptasamninga eða merkjalýsinga
  • 56 einstaklingar luku námi, 31 í gerð eignaskiptayfirlýsinga og 25 í gerð merkjalýsinga.
  • Stefnt er að því halda samskonar námskeið aftur innan eins árs

Námskeiði Endurmenntunar Háskóla Íslands (EHÍ) í samstarfi við HMS er ný lokið. Þeir sem standast próf geta nú í kjölfarið óskað eftir leyfisbréfi hjá ráðherra til að gera eignaskiptayfirlýsinga eða merkjalýsingar.

Mikilvægt er að sem flestir einstaklingar hafi leyfi til að gera slíka samninga svo að eigendur fasteigna hafi úr fjölda hæfra einstaklinga á velja, við ráðningu í verkið.

Merkjalýsing er skjal sem lýsir landfræðilegri afmörkun fasteignar (lands/lóðar) auk þess að tilgreina skráningu fasteignar, hvaða eignir eiga merki saman, hvert eignarhlutfall er í séreignar- og sameignarskikum auk upplýsinga um réttindi tengd fasteign.

Eignaskiptayfirlýsing er lögboðinn skriflegur gerningur eigenda fjöleignarhúss sem gerður er á grundvelli fyrirmæla fjöleignarhúsalaga og geymir lýsingu á húsinu og lóð þess og mælir fyrir um skiptingu þess í séreignir, sameign allra og sameign sumra og ákvarðar hlutdeild hvers eiganda í sameign og markar með því grundvöll að réttindum og skyldum eigenda innbyrðis og gagnvart einstökum hlutum húss og lóðar.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS