25. mars 2024

Lögbýlaskrá 2023 er komin út

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Lögbýlaskrá fyrir árið 2023 er komin út, en samkvæmt henni hefur skráðum lögbýlum fjölgað um 13 frá árinu á undan á meðan þrjú lögbýli hafa verið afskráð. Hægt er að nálgast skrána í PDF-formi með því að smella á hnappinn hér að neðan, en hægt er að smella á þennan hlekk til að nálgast lögbýlaskrána í CSV-formi.

Lögbýlaskrá fyrir 2023 má nálgast hér

Lögbýlaskrá fyrir 2023 má nálgast hér

Lögbýlaskrá er gefin út árlega fyrir allt landið á grundvelli upplýsinga úr þinglýsingabók og fasteignaskrá. Útgáfan er á vegum Matvælaráðuneytisins en samkvæmt 2. mgr. 26. gr. jarðalaga nr. 81/2004 er ráðuneytinu heimilt að fela öðrum aðila að annast gerð lögbýlaskrárinnar.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast útgáfu lögbýlaskrár þar sem haldið er utan um skrána í réttindahluta fasteignaskrár sem stofnunin meðal annars rekur.

Samkvæmt jarðalögum teljast þau lögbýli sem hafa fengið útgefið sérstakt leyfi frá ráðherra um lögbýlisrétt og skal því leyfi þinglýst. Við þinglýsinguna fær viðkomandi eign sérstaka merkingu í þinglýsingarhluta fasteignaskrár og birtist í næstu lögbýlaskrá sem gefin verður út. 

Vegna kerfisbundinnar skekkju var útgefin heildartala lögbýla á síðasta ári röng og leiðréttist það hér með. Í lögbýlaskránni sem nú hefur verið gefin út er að finna upplýsingar um 6789 lögbýli sem skráð eru á landinu í dag.

Hér gefur að líta mynd af Íslandi ásamt öllum lögbýlum á landinu og sýnir vel dreifingu þeirra. Gulu hringirnir þýða „ný lögbýli“ og rauðu þýða „niðurfelld lögbýli“ á árinu 2023.

Samsett mynd: Gervihnattamynd frá NASA dags. 2. febrúar 2009 ásamt gögnum frá HMS.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS