23. ágúst 2021

Lítið framboð dregur úr umsvifum á fasteignamarkaði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Fjöldi útgefinna kaupsamninga um íbúðarhúsnæði voru 1.072 talsins í júlí sl. samkvæmt nýútgefnum tölum frá þjóðskrá sem er 13,4% færri samningar en í júnímánuði og 9,1% færri en í júlí 2020. Fjöldinn verður að öllum líkindum færður uppá við eftir því sem þinglýsingum vindur fram en samt áður eru umsvif á fasteignamarkaði aðeins farin að dragast saman. Á höfuðborgarsvæðinu voru gefnir út 652 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði en á landsbyggðinni voru þeir 420. Samdrátturinn er hlutfallslega nokkuð meiri á höfuðborgarsvæðinu en kaupsamningum fækkaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi.

Frá því í ágúst á síðasta ári og þar til í maí á þessu ári var í hverjum mánuði sett met í fjölda kaupsamninga miðað við árstíma og í mars var eldra met um fjölda kaupsamninga í stökum mánuði stórbætt. Í maí og júní sl. voru kaupsamningar færri en sömu mánuðum árið 2007 og nú í júlí eru kaupsamningar einnig færri en þeir voru í júlí í fyrra. Helsta ástæðan fyrir minni umsvifum á fasteignamarkaði er væntanlega sú að nú séu einfaldlega fáar íbúðir eftir til sölu og því er erfiðara fyrir fólk að finna íbúð við hæfi.

Fjöldi auglýstra eigna á höfuðborgarsvæði er 690 í nýjustu mælingu en var 1745  á sama tíma í fyrra sem gerir 60% samdrátt á milli ára. Í nágrenni höfuðborgarsvæðis voru 343 eignir á söluskrá en þær voru 647 fyrir 12 mánuðum síðan og gerir það fækkun upp á 47%. Á landsbyggð voru 509 eignir til sölu í nýjustu mælingu en 901 á sama tíma í fyrra og gerir 43,5% á milli ára.

Eftirspurn eftir húsnæði virðist þó enn vera mjög mikil. Sjá má sölutími fasteigna ' fasteigna heldur áfram að styttast þar sem meðalsölutími fjölbýlis höfuðborgarsvæðinu var 35 dagar á meðan meðalsölutími sérbýlis var 43 dagar í júní síðastliðinn en í júní fyrir tveimur árum þegar umsvif á fasteignamarkaði var með hefðbundnara móti, var meðalsölutími fjölbýlis 55 dagar og meðalsölutími sérbýlis 75 dagar.

Þessar breytingar á meðalsölutíma íbúða og hækkanir á vísitölum fasteignaverðs benda til þess að það sé ekkert lát á eftirspurn eftir íbúðahúsnæði.[1] Sterk eftirspurn dugir hins vegar ekki til að halda uppi veltu á fasteignamarkaði í sömu hæðum og hefur verið vegna þess hve fáar íúðir eru eftir til sölu. Samdrátturinn er samt óverulegur enda eru umsvif á fasteignamarkaði enn langt fyrir ofan meðal júlímánuð.

[1] https://hms.is/media/9724/manadarskyrsla_hms_agust_2021.pdf

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS