8. maí 2025
24. september 2018
Leiguverð í Reykjavík hærra en í höfuðborgum nágrannalanda
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Miðsvæðis í Reykjavík leigist tveggja herbergja íbúð á um 190.000 kr. á mánuði að meðaltali. Hvergi á Norðurlöndunum er að finna jafn hátt leiguverð í höfuðborginni og hér á landi. Aftur á móti er húsnæðisverð í Reykjavík lægra en í flestum höfuðborgum Norðurlandanna. Þetta kemur fram í nýrri greiningu frá Leigumarkaðsdeild Íbúðalánasjóðs um íbúðar- og leiguverð í höfuðborgum Norðurlandanna.Íbúðaverð lágt miðað við tekjurÍ skýrslunni kemur fram að íbúðaverð í Reykjavík sé lágt í hlutfalli við tekjur miðað við höfuðborgir annarra landa. Hlutfallslega lágt húsnæðisverð á móti háu leiguverði gerir það að verkum að hagstæðara er fyrir fólk að kaupa. Á móti þessu kemur að hátt leiguverð gerir leigjendum erfiðara fyrir að safna sér upp í þá útborgun sem þarf fyrir íbúð. Hvergi jafn hátt hlutfall ungs fólks í foreldrahúsumHátt leiguverð en hlutfallslega lágt húsnæðisverð kann að vera skýringin á háu hlutfalli ungs fólks í foreldrahúsum, en hvergi á Norðurlöndunum er hlutfallið jafn hátt og hér á landi. Um 14% fólks á aldrinum 25-34 ára hér á landi býr í foreldrahúsum á meðan hlutfallið er innan við 6% víðast hvar annars staðar á Norðurlöndunum. Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.