7. maí 2025
18. apríl 2018
Leiguverð hækkar meira en íbúðaverð í mars
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,1% í mars á sama tíma og fasteignaverð lækkaði um 0,1%. Árshækkun leiguverðs, samkvæmt þinglýstum leigusamningum, nemur nú 10% og er í fyrsta skipti síðan í nóvember 2014 meiri en árshækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu, sem mælist nú 7,7%. Upp úr miðju ári 2016 fór fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu að hækka hraðar en leiguverð en nú hefur hægt á íbúðaverðshækkunum. Of snemmt er að segja til um hvert leiguverð stefni næstu misseri, en flestir eru sammála um að aukin ró sé að færast yfir húsnæðismarkaðinn.