8. maí 2025
23. september 2021
Leiguverð á höfuðborgarsvæðinu tekur við sér á ný
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Þjóðskrá hefur gefið út ný gögn um leiguvísitöluna á höfuðborgarsvæðinu en vísitalan mældist 207,8 í ágúst, sem er hæsta gildi sem hún hefur náð hingað til. Sætir það nokkrum tíðindum þar sem leiguverð lækkaði töluvert í kjölfarið á heimsfaraldri kórónuveiru og er það í fyrsta skipti nú orðið hærra en það var í janúar 2020, þegar fyrra met var sett. Vísitalan náði hámarki í janúar 2020 í 204,5 en lækkaði stöðugt frá því tímabili og náði lágmarki í maí 2020 í 195,3. Síðan þá hefur vísitalan verið nokkuð stöðug og sveiflast í kringum 200. Nú virðist leiguverð hinsvegar vera að taka við sér og hækkaði vísitalan um 1,9% á milli mánaða í ágúst sem er óvenju mikið. Til viðmiðunar þá er heildarhækkun seinustu þriggja mánaða 2,9%.

Tólf mánaða hækkun vísitölunnar mældist 3,5% og er þetta í fyrsta sinn síðan í febrúar 2020 sem hún mælist svo mikil. Leiguverð virðist því aftur vera að ná sér á strik. Leiguverð er þó enn nokkuð undir því sem það var í byrjun árs 2020 ef leiðrétt er fyrir verðbólgu eða 5,7% lægra sem gefur til kynna að staða leigjenda sé enn betri en hún var þá.
Fermetraverð á eins herbergja leiguíbúðum dýrast
Fermetraverð er mjög mismunandi eftir því hvar á höfuðborgarsvæðinu íbúðin er staðsett og einnig eftir stærð íbúðarinnar. Á myndunum hér að neðan sést hvert fermetraverð í júní-ágúst 2021 er fyrir mismunandi svæði og fjölda herberga. Þar sést að fermetraverð á eins herbergja íbúðum er lang hæst. Hæsta fermetraverðið er að finna á eins herbergja íbúðum í Reykjavík milli Kringlumýrarbrautar og Reykjanesbrautar eða 4.400 kr. fermetrinn og ódýrast á Kjalarnesi/Mosfellsbæ eða 2.800 kr. fermetrinn. Fermetraverðið fer lækkandi eftir fjölda herbergja og er það lægst í 4 herbergja íbúðum í Breiðholti eða 2.000 kr.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS