20. mars 2024

Leigusalar sóttu um stofnframlög fyrir 233 íbúðir í fyrstu úthlutun ársins

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Alls bárust umsóknir um stofnframlög fyrir 233 hagkvæmar leiguíbúðir í fyrstu úthlutun ársins
  • Umsóknirnar eru fyrir verkefni að andvirði 13,9 milljarða króna, en þau fela í sér 3 milljarða króna stofnframlög frá ríkinu og 1,7 milljarða króna stofnframlög frá sveitarfélögum
  • Umsóknirnar eru í 13 sveitarfélögum úr flestum landshlutum, en yfir 80 prósent þeirra eru á höfuðborgarsvæðinu

Þann 1. Mars sl. opnaði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun fyrir umsóknir um stofnframlög í fyrstu úthlutun ársins 2024. Stofnframlögin eru veitt til samfélagssinnaðra leigusala til að byggja eða kaupa almennar leiguíbúðir fyrir tekju- og eignaminni heimili.

Umsóknarfrestur en nú liðinn og báru 30 umsóknir til byggingar eða kaupa á samtals 233 íbúðum sem eiga að vera staðsettar víða um land. Umsótt fjárhæð frá ríkissjóð nam rúmlega 3 milljörðum króna en ríkissjóður hefur heimild til 7,3 milljarða króna úthlutunar á árinu. Fjölda íbúða og fjárhæð stofnframlaga ríkisins má sjá í töflunni hér að neðan.

Stofn­fram­lög hafa ver­ið veitt til upp­bygg­ing­ar á nærri 3.500 íbúð­um

Frá árinu 2016 þegar lög um almennar íbúðir tóku gildi hafa stjórnvöld úthlutað stofnframlögum upp á rúmlega 40 milljarða til uppbyggingar á 3.486 leiguíbúðum víðsvegar um landið. Heildarfjárfesting í uppbyggingunni nemur um 125 milljörðum króna.

Á mynd hér að neðan má sjá fjölgun íbúða með stofnframlögum eftir landshlutum, en samkvæmt henni hefur ríki og sveitarfélög úthlutað stofnframlög fyrir 2.714 íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.

Fjölg­un íbúða með stofn­fram­lög­um eft­ir lands­hlut­um

Stofnframlög eru stuðningur í formi eigin fjár sem veittur er annars vegar fyrir hönd ríkisins í gegnum HMS og hins vegar frá viðkomandi sveitarfélagi þar sem íbúðirnar koma til með að vera staðsettar í.

Markmiðið með stofnframlögum er að fjölga hagkvæmum leiguíbúðum með viðráðanlegan húsnæðiskostnað og bæta húsnæðisöryggi tekju- og eignaminni heimila. Húsnæðiskostnaður á að vera í samræmi við greiðslugetu og að jafnaði ekki umfram fjórðung tekna.

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS