19. júní 2025
18. júní 2025
Leiðbeiningar við 9. hluta byggingarreglugerðarinnar
Húsnæðis- og Mannvirkjastofnun hefur unnið að leiðbeiningagerð fjögurra leiðbeininga við 9. hluta byggingarreglugerðarinnar nr. 112/2012.
Leiðbeiningarnar eru eftirfarandi:
- 9.2.5. gr. Staðfesting brunavarna vegna breytinga á þegar byggðum mannvirkjum
- 9.4.6. gr. Sjálfvirk slökkvikerfi
- 9.6.13. gr. Brunamótstaða hurða, hlera og glugga
- 9.8.6. gr. Brunavarnar- og flóttalyftur
Skilafrestur athugasemda er til og með 17. júlí 2025. Hér er hægt að nálgast drög leiðbeininga og skila inn athugasemdum.
Stofnunin mun taka afstöðu til athugasemdanna og í framhaldi verða leiðbeiningarnar birtar inn á byggingarreglugerd.is.