22. maí 2025
16. janúar 2024
Langanesbyggð staðfestir húsnæðisáætlun fyrir árið 2024
- Áætlað að mannfjöldi aukist um 6,5% næstu 5 ár.
- Fjölgun fullbúinna íbúða síðastliðin ár og fjöldi íbúða í byggingu ekki nægur til þess að mæta fólksfjölgun.
- Langanesbyggð ætlar að skapa skilyrði svo byggðar verði um 6 nýjar íbúðir á ári og 33 íbúðir næstu 5 ár.
Langanesbyggð hefur staðfest endurskoðun á húsnæðisáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2024. Samkvæmt mannfjöldaspá húsnæðisáætlunar (miðspá) þá áætlar sveitarfélagið að íbúum sveitarfélagsins muni fjölga um 38 manns á næstu 5 árum og 73 manns á næstu 10 árum.
Samkvæmt endurskoðaðri húsnæðisáætlun Langanesbyggðar er áætlað að þörf verði fyrir um 6 íbúðir á ári, 33 íbúðir næstu 5 ár og 62 íbúðir næstu 10 ár sem er í sama takti og fyrri áætlun gaf til kynna. Frá árinu 2021 hefur íbúum í sveitarfélaginu fjölgað um tæp 15% en fjöldi íbúða hefur staðið í stað.
Í talningu HMS voru 2 íbúðir í byggingu í september síðastliðinn en það eru fyrstu íbúðirnar sem komu fram í talningu frá því að talningar HMS hófust með þeim hætti sem þær eru í dag. Fjöldi íbúða í byggingu er langt frá því að mæta áætlaðri íbúðaþörf samkvæmt mannfjöldaspá húsnæðisáætlunar sem og óuppfylltri þörf fyrir nýjar íbúðir sem hefur myndast síðustu ár og þörf fyrir að fjölga íbúðum í byggingu til þess að stuðla að eðlilegri framþróun sveitarfélagsins.
Langanesbyggð hefur nú skipulagt lóðir fyrir 60 íbúðir. Á næstu 5 árum stefnir sveitarfélagið á að skapa skilyrði til að úthluta byggingarhæfum lóðum fyrir allt að 39 íbúðir svo lóðaframboð mæti áætlaðri íbúðaþörf. Meirihluti lóðanna eru nú þegar byggingarhæfar.