29. janúar 2025

Hugvit og nýsköpun í byggingariðnaði

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Í gær var haldinn fundur hjá HMS þar sem niðurstöður styrkhafa Asks – mannvirkjarannsóknasjóðs voru gefnar út.

Gefnar voru út niðurstöður og kynningarefni 38 verkefna, en á bakvið 38 verkefni eru 62 verkefnastyrkir þar sem styrkir eru veittir til eins árs í senn og mörg verkefni hafa fengið framhaldsstyrki. Sautján verkefni eru ekki fullbúin og mun efni bætast við síðurnar.

Síðurnar eru byggðar upp með myndrænu efni, stuttri kynningu á verkefnunum og þátttakendum þess, lokaskýrslu verkefnisins og slóð á vídeó af kynningu á verkefninu ef slíkt er fyrir hendi. Útgáfan er liður í að byggja upp þekkingu og stuðla að því að viðburðir og niðurstöður styrkhafa lifi áfram og geti undirbyggt frekari rannsóknir og umbætur í mannvirkjagerð.

Dag­skrá fund­ar­ins

  • Hermann Jónasson forstjóri HMS og dr. Þórhildur Fjóla Kristjánsdóttir stundakennari í Háskólanum í Reykjavík og rannsóknasérfræðingur ávörpuðu fundinn.
  • Hrafnhildur Sif Hrafnsdóttir, verkefnastjóri Asks kynnti vefsíðu með niðurstöðum styrkþega.
  • Dr. Dórótea Höeg Sigurðardóttir, lektor hjá HÍ kynnti verkefni sitt Þekking á uppsprettum í raka í byggingum á norðurslóðum.
  • Dr. Kristján Friðrik Alexandersson kynnti verkefnið Hringrásanlegt léttfylliefni í steinsteypu frá Rockpore.
  • Arnhildur Pálmadóttir, arkitekt kynnti verkefnið Háteigsvegur 59.
  • Dr. Jónas Þór Snæbjörnsson, prófessor í Háskólanum í Reykjavík kynnti verkefnið Orkunýting hönnuð og mæld.
  • Anna María Bogadóttir, arkitekt og dósent við Listaháskóla Íslands, kynnti verkefnið Híbýlaauður.

Upp­taka af fund­in­um

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS