19. júní 2018

Konur neikvæðari gagnvart leigumarkaðnum en karlar

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

Konur virðast hafa neikvæðari viðhorf í garð leigumarkaðarins en karlar. Þetta sýnir nýleg könnun Íbúðalánasjóðs. Aðspurðar töldu færri konur en karlar það hagstætt að vera á leigumarkaði. Konur töldu einnig síður en karlar að framboð leiguhúsnæðis sé nægt. Fleiri karlar töldu hins vegar að þeir yrðu komnir af leigumarkaði innan sex mánaða í samanburði við konur. Sú staðreynd rímar við niðurstöður könnunarinnar um að fleiri karlar en konur telji sig geta safnað sparifé. Leigumarkaðsdeild Íbúðalánasjóður gerir reglulega greiningar á stöðu fólks á húsnæðismarkaðnum og viðhorfi þeirra til leigumarkaðarins. Niðurstöður eru meðal annars flokkaðar eftir kyni samkvæmt 16. gr. jafnréttislaga um opinbera hagskýrslugerð. Í tilefni af kvenréttindadeginum sem er í dag 19. júní tók leigumarkaðsdeildin saman ýmsar staðreyndir varðandi ólík viðhorf kynjanna til leigumarkaðarins eins og þau birtust í nýjustu könnun sjóðsins. Þrátt fyrir hin ólíku viðhorf þá eru konur og karlar jafn líkleg til þess að vera á leigumarkaði, samkvæmt könnuninni.Niðurstöður könnunarinnar má lesa í heild sinni hér.