26. ágúst 2026

Kallað eftir íslenskum lágkolefnis- og náttúrutengdum vörum og lausnum í norræna handbók

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Opið er fyrir tillögur um lágkolefnis- og náttúrutengdar byggingarvörur og lausnir í nýja norræna handbók
  • Verkefnið er hluti af Nordic Sustainable Construction og styður við aðgerð 1.9 í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030
  • Handbókin mun draga fram norrænar fyrirmyndarlausnir og styðja við aukna þekkingu og innleiðingu sjálfbærra byggingarvara

Íslensk fyrirtæki, framleiðendur og aðrir aðilar í mannvirkjageiranum eru hvattir til að leggja til lágkolefnis- og náttúrutengdar byggingarvörur og lausnir sem gætu átt erindi í nýja norræna handbók.

Handbókin er hluti af norræna samstarfsverkefninu Nordic Sustainable Construction (NSC) og tengist framkvæmd aðgerðar 1.9 Nýsköpun í náttúrulegum lausnum og efnum í Vegvísi að vistvænni mannvirkjagerð 2030. Markmið verkefnisins er að greina, skrá og miðla upplýsingum um nýstárlegar lausnir sem geta stutt við umbreytingu byggingariðnaðarins í átt að aukinni sjálfbærni.

Handbókin er unnin af HMS í samstarfi við Grænni byggð og Granlund Oy. Henni er ætlað að draga fram um tuttugu norrænar lausnir og vörur sem þegar eru á markaði, eða eru nálægt markaðsinnleiðingu, og hafa möguleika á frekari útbreiðslu á Norðurlöndum.

Óskað er eftir tillögum að vörum og lausnum innan þriggja meginflokka:

  • Burðarvirki og undirstöður
  • Byggingarhjúpur og þök
  • Innri kerfi og innanhússlausnir

Við val á lausnum verður meðal annars horft til umhverfisáhrifa, nýsköpunargildis, markaðsþroska og möguleika á aukinni notkun í norrænum byggingariðnaði. Handbókin mun jafnframt varpa ljósi á tækifæri og áskoranir sem tengjast innleiðingu sjálfbærari byggingarvara og lausna.

Þessi vinna styður beint við markmið aðgerðar 1.9 um að efla nýsköpun í náttúrulegum efnum og lausnum, auka líffræðilegan fjölbreytileika, draga úr hráefnanotkun og styðja við þróun lágkolefnislausna fyrir íslenskar aðstæður.

Opið er fyrir tillögur út ágúst 2026 og eru íslensk fyrirtæki og aðrir hagaðilar hvattir til að koma vörum og lausnum sínum á framfæri í norrænu samstarfi.

Handbókin verður mikilvægur þekkingargrunnur fyrir byggingariðnaðinn og mun stuðla að auknum sýnileika sjálfbærra lausna sem styðja við loftslagsmarkmið Norðurlanda og þróun sjálfbærs byggðs umhverfis.

Hér má senda inn tillögur:

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS