29. maí 2026

Jákvæð viðbrögð á kynningarfundi á leiðbeiningum um ljósvist

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS

  • Kynningarfundur á leiðbeiningum um ljósvist var haldinn í húsakynnum HMS í dag
  • Fjallað var um nýjar leiðbeiningar í skipulagsgerð og leiðbeiningar fyrir byggingareglugerð. Þá var umræða tekin um áskoranir og tækifæri er varðar ljósvist.
  • Í umræðum komu fram jákvæð viðbrögð við leiðbeiningunum og bent var á að gæta þyrfti að áframhaldandi samvinnu aðila sem að ferlinu koma.

Húsnæðis,- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hélt í dag kynningarfund um nýjar leiðbeiningar um ljósvist í húsakynnum stofnunarinnar. Fundurinn var vel sóttur og sóttu hann fulltrúar sveitarfélaga, fagfólk úr mannvirkjageiranum og aðrir hagaðilar sem koma að skipulagi, hönnun og mannvirkjagerð. 

Á fundinum voru kynntar nýjar leiðbeiningar um ljósvist annars vegar í skipulagsgerð og hins vegar í tengslum við ákvæði byggingarreglugerðar. Farið var yfir hvað nýjar kröfur fela í sér á öllum stigum ferlisins, frá stefnumótun og skipulagi til hönnunar og framkvæmdar, og hvernig þær stuðla að auknum gæðum byggðar og bættri búsetu. 

Ólafur Árnason, framkvæmdastjóri skipulags- og umhverfismatssviðs, fjallaði um aðdraganda leiðbeininganna og mikilvægi ljósvistar í víðara samhengi gæða í skipulagi. Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar hjá HMS, kynnti leiðbeiningar um ljósvist í tengslum við byggingarreglugerð. Þá kynnti Borghildur Sölvey Sturludóttir, arkitekt hjá HMS, leiðbeiningar um ljósvist í skipulagsgerð. 

Að kynningum loknum fóru fram pallborðsumræður með þátttöku Auðar Dagnýjar Kristinsdóttur, skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar, Jóhönnu Klöru Stefánsdóttur, sviðsstjóra mannvirkjasviðs Samtaka iðnaðarins, og Magneu Guðmundsdóttur, arkitekts hjá Teiknistofunni Stiku. 

Í umræðum komu fram jákvæð viðbrögð við leiðbeiningunum og var áréttað að þær væru mikilvægt skref í átt að skýrari kröfum og betra samspili skipulags og mannvirkjagerðar. Lögð var áhersla á nauðsyn þess að hönnun komi fyrr inn í ferli deiliskipulagsgerðar og að mikilvægt sé að eiga áframhaldandi samtal við sveitarfélög um þróun og endurskoðun skipulags- og leyfisferla í ljósi nýrra krafna.

Hér má nálgast ljósvistar leiðbeiningar fyrir skipulagsgerð.  

Hér má nálgast ljósvistarleiðbeiningar við byggingarreglugerð.  

 

Upptöku af fundinum má finna hér

Póstlisti HMS

Skráðu þig á póstlista HMS og fáðu allar nýjustu fréttir sendar í pósthólfið þitt.

Netfang

Útgáfuáætlun

Hér má sjá útgáfuáætlun HMS