8. maí 2025
12. október 2021
Innköllun Nissan Juke
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur borist tilkynning frá BL ehf um að innkalla þurfi 28 Nissan Juke af árgerð 2019 – 2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er að takki fyrir aftursætisbak virki ekki sem skyldi og nái ekki að læsa sæti föstu eftir að sætisbak er sett upp.

Viðgerð felst í því að skipt verður um takka fyrir sætisbak báðu megin. Haft verður samband við eigendur umræddra bifreiða bréfleiðis.
HMS hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS