8. maí 2025
8. október 2021
Innköllun Mitsubishi
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur borist tilkynning frá Heklu hf. um að innkalla þurfi 34 Mitsubishi Elipse Cross bifreiðar af árgerð 2018 - 2020. Ástæða innköllunarinnar er að möguleiki er að hjólbogalisti á hægra frambretti getur losnað þegar ekið er á miklum hraða. Ef listinn losnar alveg af á ferð getur það valdið truflun og hættu fyrir aðra vegfarendur.
Varahlutir eru í pöntun og verður eigendum bílana sent bréf varðandi innköllunina. Áætlað er að varahlutir komi til landsins í lok október.
Húsnæðis- og mannvirkjastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.Um er að ræða Safety Gate tilkynningu sem er í gildi á EU / EES svæðinu. Í þessum hlekk eru nánari upplýsingar um þessa innköllun: https://ec.europa.eu/safety-gate-alerts/screen/webReport/alertDetail/10004505
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS