8. maí 2025
30. nóvember 2021
Innköllun leikfanga frá söluaðila í Barnaloppunni
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur borist tilkynning frá söluaðila á bás 292 í Barnaloppunni um innköllun á þremur tegundum leikfanga sem voru seld á tímabilinu 10. júlí 2021 til 25. október 2021. Leikföngin sem um ræðir eru Fidget Rollover Stick (raðnr. 2280-6), Finger the Yo-yo og Mokuru.

Í ljós kom að leikföngin uppfylltu ekki öryggiskröfur sem gerðar eru til leikfanga á Íslandi og hefur söluaðili því ákveðið að hætta sölu á leikföngunum og tilkynnt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um innköllun þeirra.
Þeim sem eiga slík leikföng er bent á að taka þau strax úr umferð og skila til söluaðila, gegn endurgreiðslu. Það má gera með því að hafa samband við söluaðila í síma 768-6757 eða í tölvupósti skilavoru21@gmail.com.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS