8. maí 2025
2. október 2020
Innköllun á LED-krönsum frá Kvitekoll.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) vekur athygli á innköllun Rúmfatalagersins á LED-krönsum frá Kvitekoll af gerðunum Kvitekoll 1002-19-1002 og Kvitekoll 1002-19-1003, með 3,5m aðtaug/snúru, vegna galla sem í þeim er. Kvitekoll 1002-19-1002 er með 160 ljósum og 40cm í þvermál og Kvitekoll 1002-19-1003 er með 180 ljósum og 60cm í þvermál. Umræddir kransar voru seldir af Rúmfatalagernum frá 1. október 2019 til 6. janúar 2020. Hugsanlegt er að þeir hafi einnig borist hingað til lands í gegnum netverslanir.

Rafföng: LED-kransar.
Framleiðandi/Vörumerki: Kvitekoll 1002-19-1002 með 160 ljósum og 40cm í þvermál og Kvitekoll 1002-19-1003 með 180 ljósum og 60cm í þvermál. Báðar gerðirnar eru með 3,5m aðtaug/snúru.
Þekktir söluaðilar á Íslandi: Rúmfatalagerinn.
Sölutímabil: Frá 1. október 2019 til 6. janúar 2020.
HMS beinir því til allra eigenda og notenda viðkomandi kransa að hætta notkun þeirra þegar í stað og hafa samband við Rúmfatalagerinn.
Sjá frekari upplýsingar og leiðbeiningar í innköllun Rúmfatalagersins: https://www.rumfatalagerinn.is/ymislegt/innkollun/.
Útgáfuáætlun
Hér má sjá útgáfuáætlun HMS