22. maí 2025
30. desember 2021
Innköllun á Frigg snuðum
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur borist tilkynning í gegn um Safety Gate tilkynningakerfi EES-ríkjanna um innköllun á hættulegum sílikon barnasnuðum frá Frigg. Ástæða innköllunarinnar er sú að sílikontútta snuðsins getur auðveldlega slitnað frá plasthluta þess. Við það losnar frá smáhlutur sem getur valdið köfnunarhættu hjá ungum börnum.

Þegar er vitað um þrjá söluaðila á Íslandi sem hafa nú þegar innkallað snuðin en það er Valhneta, Petit og Yrja.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur forráðamenn barna til að taka snuðin tafarlaust úr notkun og skila þeim á sölustað.